VÍGVÆÐING OG VALD
Óhætt er að segja að umfjöllun um vígvæðingu og misbeitingu valds eigi erindi inn í þjóðmálaumræðu – ekki aðeins hér á landi heldur alls staðar. Sérstaklega á umræða um þessi efni þó erindi nú við Íslendinga sem senn ganga til atkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi umsóknarferli í Evrópusambandið.
Á hádegisfundi á morgun, laugardaginn 8. ágúst, er efnt til fundar um þetta efni með áherslu á hvert stefni í Evrópusambandinu hvað þetta varðar.
Leitað er álits sérfræðinga sem látið hafa til sín taka á heimsvísu og við heyrum í blaðamanni sem settur hefur verið í straff af hálfu Evrópusambandsins. Fyrir hvað er hann spurður og í hverju er straffið fólgið.
Við heyrum líka í þeim Alfred de Zayas, fyrrum sérfræðingi Sameinuðu þjóðanna í alþjóðasamskiptum, ítalska stjórnmálarýninum Thomas Fazi, að ógleymdum Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia háskólann í New York, sem tekur þátt í fundinum frá Aþenu þar sem hann er staddur þessa stundina.
Þau sem vilja kynna sér málin - kíkja í hernaðar- og málfrelsispakkann – komi á fundinn – hann er að sálfsögðu öllum opinn.

-------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)