Fara í efni

VIÐ ERUM PAKKINN

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 13/14.06.26.
Í vikunni sat ég fund í Þýskalandi þar sem þess var minnst hvernig friðarhreyfingum hefði tekist að skapa jarðveg fyrir afvopnunarsamninga undir lok síðustu aldar. Krafan sem milljónirnar á fjöldafundunum höfðu sameinast um var að í stað þess að færa vopnin nær hugsanlegum átakalínum yrðu þau fjarlægð þaðan og þeim fækkað.
Nú væri öldin önnur, alið væri á stríðsótta og að lausnin væri fleiri vopn en ekki færri, stigmögnun í stað slökunar, “óvinurinn“ skyldi gersigraður!
En eins og Hemingway sagði forðum vinnast stríð aldrei með vopnum, þau vinnist ekki einu sinni með sigri. Friður fengist með öðum hætti.
Mér var bent á að í kauphöllunum birtist veruleikinn. Hlutabréf í Volkswagen, áður tryggust fjárfesting í Þýskalandi, hröpuðu í verði en bréfin í Rheinmetall vopnaverksmiðjunum næðu háum hæðum. Vopnaiðnaðurinn væri orðinn ráðandi. Fjármunir sem áður var varið til velferðar færu nú í vígbúnað. Telji einhver að innan Evrópusambandsins sé lítil spilling ætti sá hinn sami að kynna sér hagsmunatengsl stjórnmálanna við vopnaiðnaðinn.
En hvers vegna Evrópusambandsaðild Íslands? Þið búið við mestu hagsæld á byggðu bóli, eruð tengd mörkuðum Evrópu en getið jafnframt gert tvíhliða samninga við hvert það ríki sem þið viljið en ætlið að láta Evrópusambandið taka undan ykkur stólinn við samningaborð heimsins og lokast inni í glórulausri hervæðingu. Þið eigið að vera í stöðu friðflytjandans sem heiminn sárlega vantar.
Ég sagði marga vilja „kíkja í pakkann“ og auk þess þætti meira öryggi að heyra til stórri efnahagssamsteypu með sameiginlegan gjaldmiðil.
Þið viljið með öðrum orðum athuga hvort þið komist upp með að halda sjálfstæði umfram okkur hin, yfirráðum auðlinda og fullveldi fram yfir það sem þið fenguð með EES samningnum?
Það eruð þið sem eruð pakkinn og eruð það þá ekki þið sjálf sem þurfið að rýna í hvað þið eruð að gera og það óafturkræft?
Allt þetta var sagt í vinsemd en forundran og klykkt út með einfaldri en umhugsunarverðri ábendingu: “Stór skip geta sokkið ekkert síður en smá“.
Þarna var samhljómur við bréf sem mér barst : “Það er enginn pakki að kíkja í. Ísland er pakkinn sem sumir vilja afhenda öðrum á kostnað íslensku þjóðarinnar með glæfralegum líkindareikningum sem byggja á breytilegum aðstæðum eftir inngönguna, umsækjanda í óhag! Leyfum sjálfstæði þjóðarinnar að ná einnar aldar afmæli áður en við látum það frá okkur.”

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)