Fara í efni

VANESSA BEELEY UM ÍRAN OG MIÐAUSTRIÐ – LISTEN TO VANESSA ON THE MIDDLE EAST

Í ársbyrjun 2019 talaði fréttaskýrandinn Vanessa Beeley á fundi í Reykjavík í fundaröð minni Til róttækrar skoðunar. Fundurinn reyndist mikill hitafundur enda málefnið tilfinningaþrungið, stríðsreksturinn í Sýrlandi. https://www.ogmundur.is/is/greinar/er-verid-ad-segja-okkur-satt-um-stridid-i-syrlandi
Íslenskir fjölmiðlar með Ríkisútvarpið í broddi fylkingar neituðu Vanessu um orðið en sameinuðust um að níða hana niður að fundinum loknum og hlutust af því nokkur skrif í blöðum og á samfélagsmiðlum.
Nóg um það að sinni en hér er nýlegt viðtal KlaTv við Vanessu frá því í mars en margt ef ekki allt sem þarna er sagt á erindi til okkar að því er mér finnst.


Vanessa Beeley er þaulkunnug málefnum Mið-Austurlanda, bresk að uppruna en meira og minna búsett í Mið-Austurlöndum allar götur frá því faðir hennar, sir Harold Beeley, var sendiherra Breta í Egyptalandi tvívegis á sjöunda áratug síðustu aldar.
Hér slóð á umfjöllun Kla tv: https://www.kla.tv/40567

---------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti.
Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)