Fara í efni

UTANRÍKISRÁÐHERRA ESB OPNAR PAKKANN

Kaja Kallas, utanríkismálaráherra Evrópusambandsins, harmaði það á sameiginlegum fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í vikunni hve mikill dráttur væri á afhendingu vopna frá Bandaríkjunum til þessara ríkja en fagnaði þó um leið auknum útgjöldum til vígvæðingar í Evrópu.
Á fréttamannafundinum að loknum fundi ráðherranna sem komu saman í Saarema kastala í Eistlandi í vikunni sá ég ekki utanríkisráðherra Íslands. En íslenski fáninn var þarna að baki Kaju Kallas á meðan hún gerði grein fyrir hertum þvingunaraðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi sem hún sagði að þyrfti að einangra enn betur á alþjóðavettvangi og að slíkum aðgerðum yrði ekki látið lokið þótt Úkraínustríðinu lyki!

Þetta hefur náttúrlega ekki verið rætt á Alþingi Íslendinga og fari svo að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið þá verður þetta sá háttur sem hafður verður á. Kaja Kallas og þau sem koma í kjölfarið í hennar hlutverki verða talsmenn Íslands. Reyndar er Þorgerður Katrín utanríkisráðherra þegar búin að leggja drög að því að Íslendingar samsami sig utanríkisstefnu ESB. Þar með talið þvingunaraðgerðir gegn „óvinum“ sambandsins. Draumar sem fólk kann að hafa um Ísland sem friðflytjanda verða úr sögunni við inngöngu í ESB.

Evrópusambandið styður árásarstríð Trumps í Íran, lítur svo á að það sé Íran sem sé að valda vandræðum á siglingleiðum en horfir fram hjá árásarríkjunum, BNA og Ísrael. Í máli Kaju Kallas kom fram að Íran beri að fordæma vegna stuðnings við hryðjuverkasamtök og vel að merkja kjarnorkuáætlunar sinnar – áætlunar sem logið er um á svipaðan hátt og um gereyðingarvopn Saddams Hussein á sínum tíma. Hafa þarf í huga að utanríkisráðherra Evrópusambandsins sem talar um glæpsamleg kjarnorkuáform suður I löndum er í forsvari fyrir ríki sem vilja efla kjarnorkuvígbúnað sinn!

Evrópusambandið hefur engar raunverulegar áhyggjur af því sem fram fer á Gaza, í Líbanon eða Sýrlandi þar sem ofbeldi færist mjög í vöxt frá hendi íslamskra ofsatrúarmanna sem BNA í samstarfi við nýlenduveldi Evrópu settu nýlega til valda þar í landi.

Íslenski fáninn blakti ekki í mínu nafni á fundinum þar sem Kaja Kallas skýrði áherslur ESB í utanríkismálum. Varla hefur fáni Íslands verið þarna í þökk nokkurs manns sem vill að Ísland segi sig frá hlutdeild í þjóðarmorði á Gaza, stuðningi við valdníðinga í Damaskus, árásir á Íran og Líbanon, vígvæðingu Evrópu, andóf gegn sáttum í Úkraínu, svo staðnæmst sé við það sem fram fer fyrir augum heimsins þessa dagana.

Ég hef heyrt hernaðarandstæðinga – ekki marga en þeir eru til – sem vilja fá að vita hvað gæti verið í pakkanum í samningaviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið.

Allt það er í pakkanum sem Kaja Kallas, talskona Evrópusambandsins í utanríkismálum, segir okkur svo skilmerkilega frá á hverjum fundinum á fætur öðrum. Og það mun auk þess fylgja með í pakkanum að íslenski fáninn kæmi til með að blakta við hún þegar stigmögnun vígbúnaðar er kynnt, auknum útgjöldum til hernaðar er fagnað, stuðningur við heimsauðvaldið er réttlættur og þvingunaraðgerðir gagnvart ríkjum sem óhlýðnast því að sama skapi.

Þetta er allt þarna. Endurtekið með reglulegu millibili. Síðan má sjá hvernig orð og athafnir fylgjast að.

Hvað vilja menn sjá og heyra meira?

https://www.youtube.com/watch?v=y1itCrJmHOA

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)