UPPLÝSANDI FUNDUR UM ESB, VÍGVÆÐINGU OG RITSKOÐUN
Mönnum ber almennt saman um að hádegisfundurinn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær um hervæðingu og misbeitingu valds hafi verið upplýsandi. Talsvert á annað hundrað manns sóttu fundinn en fljótlega verður honum komið á framfæri á netinu sem vonandi verður til þess að fleiri kynni sér það sem þarna kom fram.
Fundurinn var í fundaröðinni Til róttækrar skoðunar og var hugmyndin sú að þennan fund myndi sækja fólk úr báðum fylkingum Nei-i og Já-i. Þótt engin könnun væri gerð á staðnum var það mín tilfinning að flestir sem þarna voru vilji að aðildarumsókninni verði hafnað. Ég hefði gjarnan viljað að fólk úr hinni fylkingunni, sem auglýsir nú ákaft að það vilji „kíkja í pakkann“ eins og það heitir, hefði sótt þennan fund.
Ég tel að þeim sem hyggjast greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni beri hreinlega skylda til að kynna sér þessi mál - vígvæðingu og vaxandi skoðanakúgun innan Evrópusambandsisns - svo afdrifarík eiga þau eftir að verða.
Þeir voru ekki af verri endanum sem töluðu á þessum fundi, Alfred de Zayas, fyrrum sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna í alþjóðasamskiptum, ítalski þjóðfélagsrýnirinn Thomas Fazi, þýski blaðamaðurinn Hüsseyin Dogru sem hefur verið beittur harkalegum refsiaðgerðum fyrir þá sök að ástunda fréttaflutning sem þykir stríða gegn stefnu ESB og færa fram í dagsljósið sitthvað sem yfirvöld vilja að hljótt far. Víst má hins vegar heita að fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza séu honum þakklát. Síðan var Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia háskólann í New York, í beinni útsendingu erlendis frá, skeleggur og skýr að vanda.

Það sem stendur upp úr í mínum huga eftir þennan fund er eftirfarandi:
1) Evrópusambandið er ekki á nokkurn hátt sambærilegt við það sem það var fyrir rúmum þrjátíu árum þegar samið var um EES. Miðstýring hefur aukist og vægi skrifræðisins að sama skapi.
2) Evrópusambandið er ekki valkostur við Bandaríkin um að Íslendingar fái þar eitthvert skjól sem sumir tala fyrir. Þrátt fyrir tímabundnar ýfingar er Evrópusambandið undirgefið BNA í nánast öllu sem snýr að hervæðingu og áhrifavaldi á alþjóðavettvangi.
3) Þvingunaraðgerðir coercive measures, sem BNA og ESB beita ríki og einstaklinga, stríða gegn alþjóðalögum og ganga í berhögg við grunnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Íslendingar eiga aðild að og hafa heitið að virða. BNA og ESB kalla þetta «sanctions» og vilja láta líta út fyrir að eiga skyldleika við þvingunaraðgerðir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem einar standast alþjóðalög.
4) Refsiaðgerðir ESB eiga margt sammerkt með Patriot Act, Föðurlandslögunum sem innleidd voru í Bandaríkjunum eftir að Tvíburaturnarnir voru sprengdir í september árið 2001. Í Patriot Act var yfirvöldum heimilað að seilast eftir persónulegum upplýsingum um fólk - og eftir að lýst var yfir stríði gegn hryðjuverkum urðu til óvinir ríkisins.
5) Refsiaðgerðir ESB eru pólitískar og standa utan réttarkerfisins. Þær minna á aðferðir lögregluríkis.
6) Auðlindaþjófar, herganaiðnaðurinn og pólitíkin hafa náð saman í Evrópusambandinu og er talað opinskátt um að stóraukin útgjöld til vígvæðingar á komandi árum muni óhjákvæmilega bitna á útgjöldum til innviða samfélaganna – með öðrum orðum til velferðarmála.
Einhverjum kann að þykja hér tekið djúpt í árinni enda eru þetta alvarlegar yfirlýsingar. Þetta eru þó engar ýkjur. Því miður.
Ég hvet þau sem hyggjast samþykkja að framhald verði á umsókn Íslands um að fá aðild að Evrópusambandinu að kynna sér þessi mál ofan í kjölinn.
Innganga í ESB myndi reynast afdrifarík fyrir Ísland.
Og ekki til góðs.
Fljótlega verður þessum fundi komið í dreifingu á netinu sem áður segir.

-------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)
.