Fara í efni

TVÆR ÁSTÆÐUR TIL AÐ SÆKJA FUND UM ÁFENGI OG LÝÐHEILSU

Á mánudag, 16, júní er efnt til málþings sem við ættum sem flest að sækja af tveimur ástæðum.

Í fyrsta lagi vegna þess að málþingið er áhugavert.

Í öðru lagi vegna þess að þar með styðjum við framtak sem sprottið er upp úr grasrótinni til þess að veita fróðleik en jafnframt knýja á um að farið verði að landslögum. Árum saman hafa ríkisstjórn, Alþingi, embætti saksóknara, lögreglan og fjölmiðlar horft fram hjá því að landslög eru virt að vettugi og láta afskiptalausa ólöglega áfengissölu.

Allar þessar stofnanir vita þetta en virðast ekki þora að sjá til þess að farið sé að lögum.

Einhver kynni að segja að þetta bæri vott um vesaldóm. Ekki myndi ég mótmæla því.

Hitt er ljóst að þau sem standa að þessum fundi verða seint vænd um vesaldóm. Þvert á móti eiga þau lof skilið fyrir úthaldið gagnvart stofnanakerfi sem fram til þessa hefur brugðist.

Við getum lagt okkar lóð á vogarskálar einfaldlega með því að sýna þessari viðleitni áhuga og mæta á fundinn á mánudag.

-------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/