ÞÖGN RÍKISÚTVARPSINS UM FRÓÐLEG ERINDI UM REYNSLU ÍRA AF EVRÓPUSAMBANDINU
Síðastliðinn fimmtudag efndu samtökin Til vinstri við ESB til fundar um reynslu Íra af Evrópusambandinu. Um var að ræða snarpan hádegisfund í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins í Reykjavík sem kynntur var fjölmiðum í upphafi vikunnar í fréttatilkynningu sem ég birti hér að neðan. Það geri ég um leið og ég vek athygli á því hvernig sumir fjölmiðlar virðast sniðganga efni sem gagnrýnið er á ákefð ríkisstjórnarinnar um að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Þar verður ekki hjá því komist að nefna Ríkisútvarpið sérstaklega.
Frummælendur á fundinum, þau Patricia McKenna og Thomas Pringle sögðu frá því hvernig réttindi Íra sem þeir höfðu talið vera í hendi um forgang þeirra að sjávarauðlindinni í fyrrum sjávarlögsögu Írlands hefðu gufað upp þegar á þau reyndi.
Á fundinum röktu írsku gestirnir með hvaða hætti Evrópusambandsdómstóllinn í Lúxemborg dæmdi ævinlega í anda þess sem kveðið væri á um í verklýsingu hans, nefnilega að stuðla með úrskurðum sínum að sífellt meiri samruna innan Evrópusambandsins. Jafnframt er þess að geta - eins og margoft hafa verið færð rök fyrir hér á síðunni – að hann leggst ævinlega á sveif með markaðsöflum. Það er í mínum huga nokkuð sem skiptir höfuðmáli og aldrei má horfa fram hjá.
Annar gesta okkar, Thomas Pringle, sótti á sínum tíma mál fyrir dómstólnum þar sem honum þótti írska stjórnin ganga erinda fjárfesta í írska bankahruninu.
Þess mé geta í framhjáhlaupi að í samantekt Kára hér á síðunni um dómapraxís hjá dómstól Evrópudómstólsins í Lúxemborg er vikið að "Pringle málinu" sem litið er á sem lykilmál því það þótti vera fordæmisgefandi. Patricia McKenna hefur skrifað ítarlega lögfræðilega úttekt á máli Thomasar Pringle og öðrum málum sem sýna fram á að dómstóll Evrópusambandsins i Brussel vill hafa síðasta orðið í öllum málum sem skotið er til hans og það orð er ætið í þágu samruna og markaðar. Þar væri komið efni í annan fund!
Fyrrenfnd skýrsla Kára er hér: https://www.ogmundur.is/static/files/pdfskjol/esb-skuldir5.pdf
Vitað var að ”liðlegheit” írskra stjórnvalda gagnvart fjárfestum í kjölfar írska banakhrunsins var runnin undan rifjum ESB eins og kom fram i fréttum þegar upplýsingar þar að lútandi láku til fjölmiðla:
Sjá frétt BBC news sem tengist umgetnu Pringle máli og rendar einnig Íslandi sem var utan seilingar ESB sem tókst að kúga Íra til þess að láta skattgreiðendur blæða fyrir bankana. Að þessu var vikið í fréttum breska ríkisútvarpsins á hrunárum Írlands og Ísands:
https://www.bbc.com/news/business-29942060
Það voru þó fiskveiðimálin sem hæst bar í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins sl. fimmtudag enda til fundarins boðað til fá upplýsingar um reyslu Íra af Evrópusambandinu í fiskveiðimálum. Morgunblaðið sýndi komu þessara sérfæðinga áhuga og ber að þakka hann.

Ung fréttakona frá Kla-tv sem staðsett er á Eyrarbakka tók viðöl við gestina báða. Einnig það vil ég þakka og óska Kla-tv góðs gengis.
Auðvitað hefði mér þótt þakkarvert ef fleiri fjölmiðlar, ekki síst Ríkisútvarpið, sem á hátíðastundum segist vera fjölmiðill allra landsmanna - og ber skylda til þess að vera það - hefði staðið sína vakt við komu þessara gesta sem höfðu fram að færa alvöru málefnaleg rök og reynslu sem skiptir máli að kunna skil á áður en greidd eru atkvæði um tillögu ríkisstjórnarinnar um að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu.
Þetta fengu fjölmiðlar að vita í tilkynningu sem send var út í byrjun vikunnar:

Fréttatilkynning:
Reynsla Íra af ESB
Á opnum hádegisfundi fimmtudaginn 20 ágúst munu Patricia McKenna, fyrrum þingmaður á Evrópuþinginu og Thomas Pringle, fyrrum þingmaður á írska þinginu, kynna reynslu Íra af samningum Írlands við Evrópusambandið einkum á sviði sjávarútvegsmála.
Í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Íslendingar skuli óska eftir aðild að Evrópusambandinu er því haldið fram að unnt væri að ná ásættanlegum sérsamningum til frambúðar við Evrópusambandið um mikilvæg hagsmunamál og er þar einkum horft til sjávarútvegsmála. Er svo að skilja að um það megi semja að Íslendingar yrðu undanþegnir því um alla framtíð að þurfa að hlíta sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins.
En hvað kennir reynslan um slíka samninga? Á fundinum munu stjórnmálamennirnir tveir Patricia McKenna og Thomas Pringle sem bæði hafa mikla reynslu á þessu sviði, greina frá reynslu Íra.
Fundurinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins (gengið inn frá Suðurgötu) og hefst hann klukkan tólf og stendur í klukkutíma.
Fundurinn er opinn og öll velkomin.
Nánar um frummælendur:
Patricia McKenna er þekktur írskur mannréttindalögfræðingur og einarður umhverfissinni. Hún sat á þingi Evrópusambandsins frá 1994 til til 2004 og var um skeið varaformaður umhverfissinna á þinginu, það er græna flokkahópsins þar.
Patricia McKenna hefur sótt mál fyrir dómstólum þar sem hún kvað það ekki vera í samræmi við lög að nýta skattfé borgaranna til einhliða áróðurs í þjóðaratkvæðagreiðslum um málefni runnin undan rifjum Evrópusambandsins.
Patricia McKenna þekkir mjög vel til þess hvernig írskir landbúnaðar- og sjávarútvegshagsmunir hafa verið fyrir borð bornir í Evrópusambandinu og hvernig samningar sem írsk stjórnvöld hafa gert við ESB til varnar þessum hagsmunum hafa ekki staðist.
Thomas Pringle sat á írska þinginu frá 2011 til 2024, og átti hann á þessum árum bæði sæti í sjávarútvegsmála- og landbúnaðarnefnd þingsins svo og í dómsmálanefnd. Hann hefur verið gagnrýninn á miðstýringu frá Brüssel og hefur hann meðal annars farið með mál fyrir Evrópudómstólinn þar sem hann hefur fært rök fyrir því að ýmsar reglugerðir Evrópusambandsins í samræmingarátt séu utan lögbundinna valdheimilda.
Thomas Pringle er frá Killybegs sem hefur stærstu sjávarútvegshöfn Írlands. Hann hefur starfað við vinnslu sjávarafurða og þekkir vel til sjávarútvegsmála og hvernig þeim hefur reitt af innan ESB.
Frummælendur munu gefa kost á viðtölum eftir fundinn í Þjóðminjasafninu. Sé áhugi á viðtölum á öðrum tímum, hvort sem er fyrir eða eftir fundinn, verður hægt að leita milligöngu hjá Þorleifi Gunnlaugssyni sími 8204020, netfang thorleifur.gunnlaugsson@gmail.com og
Ögmundi Jónassyni 8946503, netfang ogmundur@ogmundur.is
---------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)