SVEINN Í SJÖ BINDUM OG ÁNÆGJUVÍDD TILVERUNNAR
Ég veit eiginlega ekki hvað mér þótti merkilegast þegar ég sótti í dag kynningu á útgáfu dagbóka og annarra ritverka landlæknisins, náttúruvísindamannsins og frumkvöðulsins Sveins Pálssonar (1762-1840),
a) frumkvæðið að útgáfunni,
b) vinnan við þessa risa 7-binda útgáfu sem greinilega hefur verið gríðarleg,
c) eða sjálft viðfangsefnið, Sveinn Pálsson og framlag hans til framfara á Íslandi á sinni tíð.
Allt er þetta merkilegt og öllu gert nokkur skil á bókakynningu á Nasa í dag. Höfuðpaurinn, Lilja Pálmadóttir, einn afkomenda Sveins og frumkvöðull alls þessa, setti samkomuna, útgefandinn Kristján B. Jónasson sleit henni; hinir akademísku verkamenn Már Jónsson og Sigrún Jónsdóttir gerðu grein fyrir sinni miklu vinnu og annarra sem að verkinu komu en þar sem andlag alls þessa, Sveinn Pálsson, er löngu genginn, tróð Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri upp í hans stað, uppáklæddur og nánast eins og maður hafði séð sjálfan Svein fyrir sér. Myndin hér að ofan sýnir tvífarann í pontu.
Þá skal nefndur Skúli Skúlason, fyrrum rektor á Hólum, formaður náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar, en Skúli flutti áhugavert erindi þar sem hann kom öllu fyrir, bæði fortíðinni og samtíðinni, í réttu sögulegu samhengi.
Þetta mikla útgáfuframtak hefur vafalaust notagildi fyrir rannsóknir á ýmsum sviðum, náttúrufræði, sagnfræði og þjóðháttafræði. Það er mikilvægt að færa samtímanum vitneskju um sögulegar rætur sínar. Það gerir lífið litríkara og skemmtilegra að þekkja til þeirra. Sennilega er það einmitt þetta sem mér þykir aðdáunarverðast við þetta framtak, að sett skuli fé og kraftur í verðugt menningarlegt viðfangsefni sem dýpkar ánægjuvíddina í tilveru okkar allra.
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)