Fara í efni

SUMARKVEÐJA

Af algeru tilefnisleysi, nema ef vera skyldi góðu sumarskapi í júlímánuði, ákvað ég að senda lesendum síðunnar kveðju, eins konar póstkort með heimspekilegu ívafi.

Á þennan skemmtilega litríka garð rakst ég á göngu í austurbænum í Reykjavík, staðnæmdist við hann og rýndi í boðskap sem málaður hafði verið á garðveggina. Sérstaklega varð mér starsýnt á skilaboð sem vísuðu til okkar sjálfra – sjálfsins, egósins - sem af og til er til bölvunar í mannlífinu. Enda kom i ljós við lestur á vegginn að heimspekingurinn sem hafði teiknað á hann hafði viljað koma því á framfæri að við skyldum vara okkur á sjálfinu, það væri ekki okkar besti vinur:
Your Ego is not your Amigo.

Með þessari veggmynd sendi ég öllum sumarkveðju með hvatningu um að íhuga skilaboðin á veggnum en jafnframt óska ég þess að okkur auðnist sem oftast að koma auga á hið skemmtilega í tilverunni.

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti.
Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)