STÐYJUM KVIKMYND UM KÚRDÍSKAR BARÁTTUKONUR – SUPPORT FILM ON KURDISH WOMEN FIGHTERS WHO STRUGGLE FOR PEACE - SEE TEASER
Benedetta Argentieri heitir ítölsk kvikmyndagerðarkona. Hún hefur gert frábærar heimildarmyndir um Mið-Austurlönd, þar á meðal verðlaunamyndina Matchmaker en hún fjallaði um konur á Vesturlöndum sem gengu til liðs við Íslamska ríkið, ISIS, í Sýrlandi fyrir fáeinum árum.
Margar konur voru blekktar til þessa og fjallar myndin einkum um konu sem var gerandi í þessu efni, fékk konur til fylgilags við hermenn ISIS. Myndin er spegill á flókna veröld.
Nú vinnur Benedetta að heimildarmynd um friðartilraunir Kúrda með áherslu á konur sem verið hafa skæruliðar í fjallahéruðum á landamærum Tyrklands og Íraks.
Myndin er komin vel á veg en ennþá vantar nokkuð upp á fjármögnun. 12 dagar eru eftir af söfnunartímanum og hvet ég alla sem eru aflögufærir um einhverja fjármuni – allt er vel þegið – að láta eitthvað af hendi rakna.
Hér er slóð sem upplýsir um myndina og tengill inn á söfnunina. Only 12 days left for crowd-funding. See teaser, if you scroll down there is an English text.
https://www.produzionidalbasso.com/project/nuova-primavera-nubihar/
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)