STARFSMANNAFÉLAG REYKJAVÍKURBORGAR EITT HUNDRAÐ ÁRA
STARFSMANNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR ÓSKAÐ TIL HAMINGJU MEÐ 100 ÁRIN
Síðar í vikunni kemur út á prenti og á vefmiðli nýjasta eintak af málgagni Sameykis, stærsta aðildarfélags BSRB. Þar eru viðtöl við nokkra forngripi, auk mín, Sjöfn Ingólfsdóttur, fyrrum formann Starfsmannfélags Reykjavíkurborgar en nokkru eftir hennar dag sem formaður, sameinaðist félagið Starfsmannafélagi ríkisstofnana, SFR, og varð þá Sameyki til. Þá er rætt við Garðar Hilmarsson, sem einnig var lengi vel formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og síðar forystumaður í Sameyki.
Kveikjan að þessum viðtölum var án efa nýafstaðið glæsilegt afmælishóf sem efnt var til í salarkynnum Ráðhússins sautjánda janúar til að halda upp á að eitt hundrað ár væru liðin frá stofnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Sjálfur veit ég nokkurn veginn hvað ég sagði í viðtalinu við mig en hin viðtölin á ég eftir að lesa svo og fleira boðað efni í blaðinu, viðtöl og svo brýningu frá núverandi talsfólki félagsins um að félagsmenn standi í ístaðinu gagnvert ríkisstjórn landsins sem virðist komin með það inn í sitt forrit að allra meina bót sé að skerða réttindi opinberra starfsmanna. Þar vegur þyngst eins og sakir standa tilraun til afnáms svokallaðrar áminningarskyldu en hún gengur út á það að vanhæfum stjórnendum verði gert kleift að reka skýringarlaust starfsfólk sem þeim er í nöp við.
Svona lagað eða svipað hefur stundum verið reynt á hundrað ára ferli Starfsmannafélgs Reykjavíkurborgar. En með þessu minna stjórnvöld á mikilvægi verkalýðsfélaga. Að þessu mun ég víkja síðar eftir að Sameykisblaðið er komið út.
Ég óska afmælisbarninu til hamingju með hundrað árin og Sameyki óska ég velfarnaðar í framtíðinni.
----------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)