SÉRA ÞÓRIS MINNST
Í dag fór fram útför séra Þóris Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprests og staðarhaldara í Viðey. Ég ritaði nokkur minningarorð um séra Þóri í Morgunblaðið í dag og birti ég þau hér að neðan:

Einhverjum kann að finnast langt seilst að leita skyldleika við menn í langafa sínum. Það finnst mér reyndar ekki og enn síður þótti séra Þóri Stephensen svo vera; jafnvel þótt talsvert lengra væri farið aftur i ættir, fann hann til frændsemi, lægju rætur þannig. Séra Þórir þurfti þó að leita skemmra aftur en ég til að finna skyldleika með okkur því það var langafi minn en afi hans sem bundu okkur frændur saman.
Þetta voru þeir Hans Stephensen bóndi á Hurðarbaki í Kjós og Stefán Stephensen, sterki sem kallaður var, prestur á Ólafsvöllum á Skeiðum og síðar Mosfelli í Grímsnesi. Þeir Hans og Stefán voru ekki aðeins bræður heldur einnig nánir vinir. Þessi frændsemi og vinátta náði síðan til okkar séra Þóris.
Ekki gerðist það af sjálfu sér fremur en annað í þessu lífi. Ræktarsemi séra Þóris við ættboga sinn var mikil. Þannig leiddi hann okkur saman, náskyld og fjarskyld, kveikti með okkur áhuga á liðinni tíð og benti á hvar hina sögulegu arfleifð væri að finna í samtímanum. Hann hélt sambandi við þær greinar fjölskyldu sinnar sem flust höfðu til Danmerkur og þangað lögðum við mörg hver land undir fót undir hans forystu og gestgjafar okkar danskir sóttu okkur síðan heim. Mannlífið var kortlagt, örlagaþræðir raktir og úr urðu fróðleg kynni og góðar minningar.
Fáum mönnum hef ég kynnst sem lagt hafa meiri rækt við söguna en séra Þórir Stephensen gerði. Um það bera ýmis verk hans vitni svo og bækur og greinar um söguleg málefni. Framlag hans til endurreisnar Viðeyjar sem verðugs söguseturs var ekki lítið.
Allt sem hann lagði hönd á var gert af vandvirkni og listfengi. Læt ég nægja að nefna bókina um afa hans, Stefán sterka. Kröftum Stefáns var viðbrugðið en einnig hlýju. Það sem athygli mína vakti við lestur þessarar stórskemmtilegu og fróðlegu bókar var hve mikill gerandi þessi afi séra Þóris hafði verið. Þegar séra Stefán ákvað að grafinn yrði áveituskurður á Ólafsvöllum var það ekki aðeins svo að hugmyndin væri prestsins heldur einnig framkvæmdin. Presturinn, sjálfur öslandi um, gróf öllum öðrum fremur enda skurðurinn nefndur Prestsskurður.
Séra Þórir Stephensen var gæddur þessum lifandi áhuga sem einkennt hafði afa hans; báðir voru þeir menn hugmynda en einnig þeir sem framkvæmdu.
Ekki getur nú orðið af áformuðum fundi okkar frænda míns því séra Þórir er horfinn á braut úr þessu jarðlífi. Horfinn verður hann þó aldrei því eftir hann liggja verk hans og í mínum huga mun lifa minningin um merkan mann og góðan vin.
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)