Fara í efni

SANNFÆRANDI JÖKULL SÓLBERG!

Heimildin kom venju samkvæmt inn um lúguna hjá mér í morgun. Þar er að finna mikla umfjöllun um afstöðu manna til hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Þar staðnæmdist ég sérstaklega við viðtal við Jökul Sólberg Auðunsson félaga í Til vinstri við ESB.
Þótti mér honum mælast vel.

Annars staðar I blaðinu er haft eftir utanríkisráðherra, formanni Viðreisnar, að andstæðingar ESB aðildar Íslands vilji ekki að þjóðin vakni!

Þetta er mikill misskilningur og fer því afar fjarri að það eigi við um vinstri andstöðuna við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Viðtalið við Jökul Sólberg Auðunsson er gott dæmi þar um. Þar kemur fram ígrunduð, yfirveguð afstaða sem ég held að höfði mjög til fólks á vinstri væng stjórnmálanna. Forsendan er hins vegar sú að fólk sé vel vakandi og láti ekki stjórnast af keyptum áróðri og klisjum. Því meiri umæða og því betur sem fólk virkjar eigin dómgreind og það vel vakandi þeim mun betra.

 

Á þessari slóð má nálgast viðtalið við Jökul Sólberg. Viðhorf hans er til marks um málflutning sem mér heyrist vera að styrkjast á vinstri væng stjórnmálanna. Þar verður vart mikils vilja til fjölþjóðlegs samstarfs en hafnað er að gangast undir vaxandi hernaðarhyggju og vald þeirra fjármagnsafla sem hafa læst klóm sínum í Evrópusambandið og ráða þar nú lögum og lofum:

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)