SAMFÉLAGIÐ BROTIÐ NIÐUR MEÐ AÐSTOÐ EES
Sú var tíðin að póst- og símaþjónusta landsmanna var rekin undur sama þaki. Síminn malaði gullið en pósturinn flutti okkur jólakortin og allt það sem við vildum senda frá okkur eða fá sent til okkar. Þegar Póstur og sími voru aðskilin í byrjun tíunda áratugarins skilaði samsteypan tveimur til þremur milljörðum í ríkissjóð á ári hverju – einhvers staðar á þeirri stærðargráðu – sem voru miklir peningar þá.
Ódýrustu símtöl á byggðu bóli
Ekki nóg með að stofnunin aflaði ríkissjóði tekna, Landssíminn sá okkur fyrir lægri innanlands-símgjöldum en fyrirfundust nokkurs staðar á byggðu bóli!
Það var ekki að undra að «fjárfestar» vildu komast yfir þessa gullgæs. Þeir litu ekki á Landssímann sem þjónustustofnun fyrir landsmenn heldur eftirsóknarverða gróðalind.
Harðar deilur urðu um það á Alþingi þegar Póstur og sími voru aðskilin til þess að búa í haginn fyrir einkavæðingu Símans. Enginn lét sér koma til hugar á þessu stigi að selja póstinn, hann heyrði vissulega til mikilvægra innviða en var hins vegar líklegur til þess að verða byrði fyrir ríkissjóð og að sama skapi ólíklegur til þess að skila fjárfestum ávinningi.
Alltaf sömu ósannindin tuggin
Formúlan var alltaf sú sama, hvort sem það voru ríkisbankarnir eða Póstur og sími. Hamrað var á því að eingöngu væri um formbreytingu að ræða – gera ætti ríkisstofnun að hlutafélagi. Lengra næði breytingin ekki.
En alltaf voru brögð i tafli og mjólkurkýrin seld. Þegar síminn var seldur var því svo lofað að grunnnetið yrði undanskilið. Það yrði í ríkiseigu – rækilega aðgreint frá Símanum. Það var að sjálfsögðu svikið eins og annað.
Athygli vakti í þessu ferli öllu - og mætti líta á það sem eins konar sýnikennslu í mannlegum breyskleika - að sjálfir stjórnendur Símans gátu ekki við sölu grunnnetsins setið á sér að eignast persónulega hlut í þessu sama grunneti og þeim hafði verið uppálagt að halda fjarri þeim hagsmunum sem þeir ættu að gæta. Nú kom í ljós að hagsmunagæslan náði aldrei lengra en ofan í þeirra eigin vasa.
Svona leikur kapítalisminn jafnvel bestu menn.
Lífæð þjóðar látin ganga kaupum og sölum

Grunnnetið, Míla eins og það heitir nú, er komið í meirihlutaeigu franskra fjárfesta sem skilgreina þessa eign sína á heimasíðu sem „ fjarskiptainnviðafyrirtæki sem fjárfestir í lífsgæðum Íslendinga. Míla er lífæð samskipta og er í fararbroddi þegar kemur að fjarskiptainnviðum á Íslandi“. Það voru einmitt þessi hugtök sem við notuðum í „málþófinu“ gegn markaðsvæðingu Landssímans á sínum tíma; tilraun okkar til þess að koma í veg fyrir að þessi „lífæð samskipta“ þjóðarinnar yrði látin ganga kaupum og sölum.

Á þessum tíma vildi Orkuveita Reykjavikur líka reyna fyrir sér á þessum markaði og leit nú Ljóðsleiðarinn dagsins ljós. Grafnir voru skurðir upp að íbúðarhúsum svo keppa mætti við hinn einkavædda Landssíma um notendur.
Markaðurinn var með öðrum orðum byrjaður að «hagræða».

En viti menn þarna mátti einnig græða og Hildur borgarstjóri hefur nú lýst því yfir að hún ætli fólki sem kunni til verka á markaðstorginu að mjólka þessa mjólkurkú, Ljósleiðara Orkuveitunnar. Hann skal með öðrum orðum seldur.
Borgarbúar muni að sjálfsögðu hagnast á sölunni segir borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar, stjórnmálaflokkanna sem eitt sinn voru í einni sæng en aldrei að fullu skilin að borði og sæng eins og dæmin sanna. Jú, jú, við könnumst við þetta allt saman. Allt samkvæmt formúlunni. Auðvitað allt gert í þágu almennings!

Annar pólitískur handlangari peningamanna mætti í fjölmiðla á dögunum til þess að segja okkur að til standi að hefja einkavæðingu sorphirðunnar í Reykjavík.
Þarna er að sjálfsögðu enn verið að þjóna Mammon. Reynslan af slíkri þjónkun er ótvíræð og alltaf á einn veg. Á endanum verður sorphirðan dýrari eins og jafnan gerist þegar starfsemi er snúið frá þjónustuhlutveki við samfélag og hún látin þjóna peningahagsmunum. Við slíkar aðstæður kann vissulega að vera hagrætt en þá í þágu eigenda. Það skiptir nefnilega máli hver eigandinn er, við öll eða bara vildarvinir þeirra Hildar og Friðjóns.

Úr frétt Morgunlaðsins
Ekki getur það talist líklegt að Nóbelsverðlaunin í hagfræði þetta árið gangi til þeirra sem bera það á borð að nú sleppi útsvarsgreiðendur í Reykjavík við það að fjárfesta í búnaði sem tengist sorphirðunni í Breiðholti! Varla verður hún, fremur en annars staðar, rekin án sorphirðubíla, eða hvað? Og þótt það verði nýir eigendur sem ganga frá kaupum á bílunum, verða það borgabúarnir sem á endanum borga fyrir þá, annað hvort beint með notendagjöldum eða með útsvari sínu.
Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefði mátt orða þetta stefnumarkmið sitt og pólitískra félaga sinna öðru vísi og segja sem satt er, að ákveðið hafi verið að hleypa að milliliðum í sorphirðunni. Það hefði að vísu í för með sér nokkurn kostnað en væri í góðu samræmi við það erindi sem Sjálfstæðisflokknum væri ætlað í stjórnmálum. Fyrir það væri að sjálfsögu mikið gefandi.
Kviknar ljós á nýjn leik
En aftur að Pósti og síma og markaðsvæðingu þeirrar stofnunar.
Nú er það svo að tæknin hefur fært okkur inn í nýja öld. Bréfasendingar hafa að verulegu leyti vikið fyrir skilaboðasendingum um internetið og margvíslegri annarri tækni. Meira að segja jólakortin eru að leggjast af – því miður leyfi ég mér að segja því þau eiga sinn þátt í að efla vinsamleg efla tengsl milli fólks og gera okkur að samfélagi.
En bíðum við. Enn ein breyting er kominn til sögunnar og það er heimsending á vörum. Menn panta föt, bækur, reyndar allt milli himins og jarðar og fá varninginn sendan heim til sín.
Þá er nú eins gott að hafa almennilega póstdreifingu enda hefur að nýju kviknað ljós á perunni í kauphöllinni. Þar sáu menn að sjálfsögðu að á þessari nýlundu mætti græða, jafnvel í íslensku fámenni. En ef vel ætti að vera þyrfti að ryðja úr vegi öllu því sem félagslegt gæti talist auk þess sem það hlyti að eiga við í þessu sem öðru að því færri sem væru um hituna þeim mun meira mætti hafa í sinn hlut.
Himnasending fá Brussel
Hér kemur ESA stofnunin að góðu gagni en hún á að hafa eftirlit með framkvæmd samningsins um Hið evrópska efnahagssvæði, EES.
Samkvæmt honum skal þrengt að samfélaginu svo samkeppni á markaði fái þrifist sem best. Starfsemi sem áður borgaði sig vegna samlegðar óarðbærra og arðbærra þátta skyldi nú aðskilin og millifærslur þarna á milli skilgreindar sem höfuðglæpur, að ekki sé á það minnst ef grunur léki á að stuðningur kæmi frá samfélaginu, þá þyrfti hið bráðasta að taka fyrir þann stuðning.
Þannig var því farið með póstinn. Upphaflega heyrði póstþjónusta ekki undur EES samninginn. Norðmenn streittust lengi vel á móti markaðsvæðingu hans og það gerðu Íslendingar einnig.
Að lokum var látið undan. Tryggð skyldi lágmarksþjónusta í dreifbýli og máttu ríkissjóðir aðildarríkja EES styðja við bakið á henni – eða þeim aðila sem sinnti henni. Sá aðili er hér á landi Íslandspóstur. Hann nýtur ríkisstuðnings fyrir vikið til þess að tryggja þessa þjónustu – alþjónustu.
Þessi fjárstuðningur styrkir vissulega alla starfsemi Íslandspósts, það liggur í augum uppi.
En yfir þessu sjá samkeppnisaðilar ofsjónum. Það á við um Dropp fyrirtækið, Póstdreifingu að ógleymdu Félagi atvinnurekenda sem hefur verið ötult mjög og bitið Íslandspóst í hælana við hvert tækifæri.
Þessir aðilar hafa hamast í fjölmiðlum og á vegum þeirra hafa verið skrifaðar ótal greinar þar sem opinberum stuðningi er fundið allt til foráttu, meðal annars að hann kunni að vera nýttur til óþarfa á borð við dreifingu jólakorta!

En það er ekki svo að samkeppnisfyrirtækin fái ekki aðstoð í baráttunni við að koma Íslandspósti á kné. Þar stendur Morgunblaðið fremst í flokki. Nánast stanslaus er „fréttaflutningur“ blaðsins af hinum ómögulega Íslandspósti. Lengi vel furðaði ég mig á hve ríkt fyrirtækið Póstdreifing væri, að geta keypt heilsíðuauglýsingar í Morgunblaðinu út í hið óendanlega; auglýsingar sem aftur rímuðu við fréttaflutning blaðsins.
En svo rann það upp fyrir mér hver eigandi Póstdreifingar er. Hann er sá sami og rekur Morgunblaðið. Útgáfufélagið Árvakur, eigandi Moggans á einnig Póstdreifingu.
Alþingi horfir aðgerðalaust á aðförina að Íslandspósti. Þar segir enginn neitt fremur en fyrri daginn. Fjármagnsöflin eru óáreitt látin rífa niður samfélagið, stundum þvert á lög og oftar en ekki með tilvísan í „fjórfrelsi“ EES samningsins. Það er helst að meirihlutinn á þingi láti til sín taka þegar Brussel kallar á það að Íslendingar samþykki að ganga enn lengra en þegar er orðið undir regluverk og dómsvald Evrópusambandsins.
Máttur auglýsinga er ekki takmarkalaus
En ð lokum langar mig til að nefna það að ég yrði þakklátur ef einhver þingmaður gerði þó ekki væri annað en að benda á hve röng sú staðhæfing er í auglýsingum Árvakurs um ágæti fyrirtækis síns að þessar kerfisbreytingar sem hér hafa verið raktar, hafi leitt af sér hagkvæmni.
Það er að sjálfsögðu ekki svo.
Meira að segja fer því fjarri.
Búið er að smíða kerfi sem er bæði óhagkvæmara og dýrara. Þetta eru staðreyndir sem auglýsingar fá ekki breytt.
--------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)