Fara í efni

“RELIGIOUS FANATICS“ Í ÍRAN - EN HVAÐ ER ÞETTA?

Rubío utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að trúarofstækismenn stjórni Íran: “Iran is run by religious fanatics“.

Það ber varla að skilja á annan veg en þann að réttlætanlegt sé að ráðast gegn Íran með fyrirsjáanlegum afleiðingum: mannfalli, eyðileggingu og ófriðarbáli sem farið er að breiða sig um öll grannríkin og hugsanlega víðar.

Í Hvíta húsinu í Washington gengst Trúarskrifstofan, Faith Office, fyrir andheitum bænastundum þar sem klerkar blessa hernað Trumps, stappa í hann stálinu og biðja um styrk honum til handa.

Hver taki þessi áköll til sín – sá sem er uppi eða sá í neðra - er svo önnur saga.

The question is who is on the receiving end of the prayers - if they are up-stairs or down-stairs.

https://x.com/ProudSocialist/status/2029680772714488237 

----------------------------------

 

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)