RÆTT UM HEIMSMÁLIN Á ÚTVARPI SÖGU
Hinn tólfta þessa mánaðar bauð Arnþrúður Karlsdóttur mér til viðræðu um heimsmálin á Útvarpi Sögu. Við ræddum um stríð og frið og drauma Íslendinga til þess að fá grætt á stríðsrekstri því eins ótrúlegt og það má nú vera er einmitt verið að skoða það hvort Íslendingar gætu tekið þátt í smíði drápsdróna fyrir Úkraínu sem fyrir sitt leyti gæti síðan aflað slíkrar sérþekkingar á þessu sviði að gagnaðist öðrum! Þarna væri sem sagt hægt að hagnast á ófriði. Því meiri stigmögnun og stríðsógn, þeim mun fleiri drónar - og meiri gróði.
Við ræddum líka um Trump, Pútín, ESB og bókun 35 – og sitthvað fleira.
Umræðuna má nálast hér:
https://utvarpsaga.is/ogmundur-dronaframleidsla-med-ukrainu-yfirgengilega-galin-og-sidlaus/
--------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)