ORÐSENDING TIL TÓNLISTARUNNENDA
12.06.2026
Fyrir tónlistarfólki þarf vart að kynna hjónin Judith Ingólfsson og Vladimir Stoupel. Þau hafa haldið fjölda tónleika hér á landi. Bæði eiga þau glæstan feril að baki sem einleikarar en einnig hafa þau iðulega komið fram saman líkt þau gera á tónleikum í Hannesarholti á sunnudaginn, 14. júní klukkan 20:00. Þar leikur Judith á fiðlu og víólu en Vladimir á pínaó.
Í stað þess að ég reyni að lýsa efnisskránni færi ég lesendum eftirfarandi slóð sem vísar á tónleikana og hvernig kaupa megi miða rafrænt standi vilji til þess. Eitt veit ég, að þarna verða mikil gæði í boði!