ÖFLUGUR FUNDUR TIL STUÐNINGS KÚRDUM Í ROJAVA
Stuðningsfólk Kúrda fjölmennti í göngu og útifund í dag. Safnast var saman við Hallgrímskirkju, síðan gengið niður Skólavörustíg , Bankastræti, Austurstræti og Pósthússtræti og að lokum staðnæmst á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið. Þar flutti Salah Karim, sem ásamt fleirum stóð fyrir þessum stuðningaðgerðum við Kúrda í Rojava, kröftuga ræðu.

Rojava er byggt Kúrdum í norðanverðu Sýrlandi og liggur héraðið að landamærum Tyrklands. Kúrdar hafa viljað frið að því gefnu að þeir fái að búa við nokkra sjálfstjórn innan landamæra Sýrlands þó. Stjórnin í Damaskus sem nýlenduveldin, ný og gömul, Ísrael, Bandaríkjamenn og Bretar settu til valda í Sýrlandi eftir að þeim loksins tókst að koma stjórn Assad forseta frá, á rætur í ISIS samtökunum sem sýnt hafa af sér gegndarlaust ofbeldi í garð Kúrda og annarra þjóðbrota í Sýrlandi.

Nú hafa sveitir þessarar leppstjórnar nýlenduveldanna umkringt borgina Kobani í Rojava g eru íbúarnir án vatns og rafmagns. Salah Karim lagði áherslu á að Íslendingar mótmæltu ofbeldinu sem Kúrdar sættu í Rojava og að stjórnin í Damaskus væri knúinn til þess að virða mannréttindi.
Salah Karim rakti gang mála og setti fram áherslur fundarmanna í ræðu sinni á Austurvelli og var vel tekið undir öflugan málflutning hans. Hann minntist með hlýjum orðum og virðingu Hauks Hilmarssonar sem barðist með frelsissveitum Kúrda á þessum slóðum en féll í átökunum.

Sjá einnig nánar hér úr fréttum Sjónvarps þar sem rætt var við Salah Karim: Samstöðufundur Kúrda á Íslandi
----------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)