Fara í efni

ODDNÝ BÝÐUR AÐ RAUÐU BORÐI

RÆTT UM KONUR OG KÚRDA VIÐ RAUÐA BORÐIÐ

Síðastliðinn fimmtudag - kvennadaginn 21. júní - bauð Oddný Ævarsdóttir mér að Rauða borði Samstöðvarinnar til þess að ræða um konur og Kúrda og fyrirhugaðan hádegisfund sem ég stend að í Safnahúsinu í Reykjavík mánudaginn 23. júní (klukkan 12).

Þar verður fjallað um réttarhöld á vegum Permanent Peoples´ Tribunal um ofsóknir á hendur Kúrdum í Rojava í norðnaverðu Sýrlandi.

Um þetta ræddum við Odný við Rauðaborðið og má nálgast samræðu okkar hér á youtube: https://www.youtube.com/watch?v=qZi2PXkTMBY&t=54s


-------------------------------------------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/