NEVROZ Í KÓPAVOGI OG FRIÐARBOÐSKAPURINN
Í gær sótti ég Nevroz hátíð Kúrda á Íslandi. Hún var haldin í Salnum í Kópavogi og tókst með miklum ágætum, ræður voru fluttar, hlýtt á tónlist og stiginn dans að ógleymdu rausnarlegu veisluborðinu með dýrindis kúrdískum mat.
Kúrdar voru í litfögrum þjóðbúningum sínum sem settu dýrlegan svip á samkomuna.

Einn helsti forystumaður Kúrda hér á landi, Salah Karim, stjórnaði samkomunni og mæltist honum vel. Við setninguna dróg hann fram nokkra fróðleiksþætti um Kúrda, hvaðan þeir kæmu, um tungu þeirra og menningu. Minnti hann á margbreytileikann en jafnframt það sem væri sameinandi.

Aland Sh Kamal flutti áhrifaríka hvatningarræðu. Ræða hans var í senn upplýsandi og hvetjandi, blés áheyrendum baráttuanda í bjóst. Ræðan fjallaði um þýðingu Nevroz hátíðarinnar fyrir Kúrda. Vitnaði hann í sögu Kúrda, sagði að með Nevroshátíðahöldum fögnuðu Kúrdar vorkomunni en hátíðin væri jafnframt áminning um söguna og menninguna, um fortíð og framtíð. Menningin þyrfti að eiga framtíðina fyrir sér. Kúrdar væru staðráðnir í því varðveita tungu sína og menningu. Þess vegna yrðu þeir aldrei yfirbugaðir. Nevroz væri þannig í senn hátíð gleði og baráttu.

Ég spann þennan þráð síðan áfram í ræðu sem ég flutti; hvernig á því stæði að Kúrdar hefðu átt erfitt uppdráttar gagnvart yfirigangi stórvelda en nytu hins vegar trausts og virðingar milljóna heimsins. Það væri vegna þess að þeir væru með baráttu sinni orðnir merkisberar andstöðunnar við kúgunarvald, tákngervingur lýðræðis og friðsamlegrar sambúðar og síðast en ekki síst tákngervingur jafnréttis kynjanna.
Ég sagði að Kúrdar hefðu notið stuðnings á Íslandi um áratugi og hefði stuðningurinn alla tíð komið úr öllum áttum stjórnmálanna. Nefndi ég þá þremenninga frá fyrri tíð, hægri manninn Pál V. Kolka lækni, afabróður minn, sósíalistann Dag Þorleifsson, blaðamann Þjóðviljans, og síðan Erlend Haraldsson, háskólaprófessor, en hann varð eins konar talsmaður íraskra Kúrda í Þýskalandi upp úr miðri síðustu öld. Málsvarar Kúrda á Íslandi hefðu þannig komið bæði frá hægri og vinstri og sama gilti um litrófið Kúrdameginn. Þannig hefði Erlendur verið í vinfengi við Barzani leiðtoga Kúrda í Írak en ættbogi hans hefur verið í góðu kallfæri við Tyrklandsstjórn og Bandaríkin, jafnvel Ísrael, gagnstætt Talibani-ættboganum sem er á öndverðum meiði í kúrdískum stjórnmálum í Írak og hefur staðið nær Íran. Svo hafi ég komið, útskýrði ég, úr gagnstæðri átt við Erlend Haraldsson, með hugsun sósíalistans Abdullah Öcalans sem bandarísku og ísraelsku leyniþjónusturnar, CIA og Mossad, ásamt tyrknesku leyniþjónustunni, sameinuðust um að fangelsa í ársbyrjun 1999 og hefur hann síðan setið á bak við lás og slá á Imrali eyju í Marmarahafi undan strönd Istanbúl.
Ekki fór ég út í alla þessa sálma í ræðu minni, þótt ég kæmi all víða við, lét nægja að draga upp höfuðdrættina í þeirri mynd sem skýrði velvild Íslendinga í garð Kúrda – frá hægri til vinstri – og nú frá öllum friðarsinnum því enginn talaði ákafar fyrir friðsamlegri sambúð en Kúrdar. Ekki veitti af slíkri rödd í heimi sem kepptist við að vígbúast svo ná megi sínu fram með ofbeldi og vopnavaldi.
Þessu til staðfestingar set ég hér boðskap Öcalans sem fluttur var á Nevrozhátíðinni í Diyarbakir, óformlegri höfuðborg Kúrda í Tyrklandi. Þar kveður við friðartón:Newroz message 
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)