Fara í efni

MINNINGARORÐ UM FÉLAGA

Mér þótt leitt að vegna fjarveru frá landinu gat ég ekki fylgt vini mínum og félaga úr verkalýðsbaráttunni Gunnari Gunnarssyni til grafar en ég sendi hins vegar minningarorð um hann sem birtust í Morgnblaðinu í dag og eru þau hér að neðan:

Um langt árabil var Gunnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkisstofnana og síðar Sjúkraliðafélags Íslands. Starfsheitið var ekki út í loftið.

Þessi framkvæmdastjóri var nefnilega alvöru framkvæmdastjóri, stýrði framkvæmdum 24/7 eins og stundum er sagt í fljótaskrift - allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. Gunnar Gunnarsson var vakinn og sofinn í starfi, stóð vaktina öllum stundum, alltaf.

Hvort sem var uppbygging og viðhald orlofsbyggða, réttindamál félagsmanna, hvernig mætti færa þau til betri vegar, bæta kaupmáttinn, jafna kjörin, efla verkalýðshreyfinguna, Gunnar var til staðar.

En hann horfði ekki aðeins til hinna breiðu mála, hans barátta snerist ekki um abstrakt hluti heldur um líf og kjör starfshópa og stétta en líka einstaklinga. Þegar hann taldi troðið á félagsmanni sínum var honum að mæta. Oft kom hann með slík mál inn á borð til mín sem formanns BSRB. Stundum leituðum við til lögfræðings samtakanna þótt yfirleitt kysi Gunnar fremur að fara hina félagslegu leið, í það minnsta reyna hana fyrst. Og orkaði málið tvímælis heyrði ég hann oftar er en ekki segja við okkar góða lögfræðing sem varaði við því að sigur kynni hugsanlega og sennilega ekki að vinnast í málinu fyrir dómstólum: "Þú getur í það minnsta fundið mér lagalega sillu að tylla á þótt ekki væri nema tánni. Um meira bið ég ekki. Við sjáum um afganginn."

Við vorum ekki alltaf sammala um allt við Gunnar en um flest og um allt það sem mestu máli skipti. Ég dáðist alla tíð að staðfestu hans og baráttuþreki. Undir lok níunda áratugar síðustu aldar munaði minnstu að samið yrði um breytingar á lífeyriskerfinu sem ég er sannfærður um að hefðu svipt opinbera starfsmenn mjög mikilvægum réttindum, gert ávinninga áratuga baráttu að engu. Gunnar stóð þá nánast einn vaktina.

Og þegar ég kom til liðs við hann naut ég leiðsagnar hans sem seint verður fullþökkuð. Allt þetta rakti ég í bók um árið og er Gunnars þar að góðu getið.

Hann á drjúgan sess í mínum huga og kveð ég hann með söknuði. Verkalýðshreyfingunni óska ég þess að eignast sína Gunnara – ekki þyrfti marga slíka til þess að hreyfa björgin sem nú er víða að finna í vegi hennar.

Hlutverk verkalýðshreyfingar í samfélagi markaðshyggjunnar er að tryggja að jafnræði ríki eftir því sem kostur er á milli handhafa fjármagns og eignarhalds annars vegar og launafólks hins vegar. En þar nægir ekki formleg aðkoman ein, heldur þurfa að vera þeir til staðar í brúnni okkar megin – verkalýðs megin – sem standa vaktina 24/7.

Nú kveðjum við einn slíkan mann. Við heiðruðum minningu hans best með því að styðja nýja Gunnara til áhrifa innan verkalýðshreyfingarinnar. Takist það mun landið rísa.

Fjölskyldu og ástvinum sendi ég samúðaróskir.

--------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)