MARÐAR MINNST
Einna merkilegast við samtímafjölmiðlun á Íslandi eru minningargreinar um látið fólk. Þar gegnir Morgunblaðið lykilhlutverki. Minningargreinarnar í Morgunblaðinu eru gluggi inn í samtímann og fyrr en varir veit sá gluggi að liðnum tíma; gluggi sem verður eins konar aldarspegill. Þetta er velviljaður spegill. Horfir til hins góða í fari okkar og leitar uppi jákvæð áhrif sem við kunnum að hafa haft á samtíð okkar.
En jafnvel þótt menn hefðu viljað finna Merði Árnasyni allt til foráttu hefði enginn komist hjá því að sjá hve góður drengur hann var þegar öll kurl voru komin til grafar. Það mátti sjá á ótal minningargreinum sem birtust um hann í dag en þegar ég segi þetta hef ég einnig eigin reynslu að horfa til og þeirra mér nákominna sem þekktu vel til Marðar Árnasonar.
Við Mörður stóðum aldrei mjög nærri hvor öðrum. Þar voru oftar en ekki milliliðir. Mér þótti lengi vel furðu sæta hve mjög Mörður virtist hallur undir kratismann þegar haft var í huga hve vel ættaður hann var – af sósíalistum af bestu sort kominn.
Smám saman fór það svo að renna upp fyrir mér að Mörður var sá maður í Samfylkingunni sem gekk hvað harðast fram í því að rétta kúrsinn til vinstri þegar þörf krafðist og þá ekki síst þegar flokkurinn hjúfraði sig að frjálshyggjunni í ríkisstjórn S og D frá 2007 til 2009, í sjálfri Hrunstjórninni.
Mörður átti sinn þátt í að slíta þeirri stjórn í byrjun árs 2009. Í bók minni Rauða þræðinum segir:
“Sennilega var einn mikilvægasti vendipunkturinn þessa örlagadaga fundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í Þjóðleikhúskjallaranum 21. janúar 2009. Þar var hamrað jafnt innandyra sem utan á kröfunni um að ríkisstjórnin færi frá og boðað yrði til kosninga um vorið. Sá sem sló þann takt hvað harðast var Mörður Árnason sem áður hafði setið á þingi og átti enn eftir að gera á komandi árum. Mig grunar að Merði hafi ekki verið á móti skapi að hrópa þessa ríkisstjórn af, því þótt hann stæði alla tíð fölskvalaust sína vakt með Samfylkingunni var hann lítill aðdáandi Sjálfstæðisflokksins. Við Mörður urðum góðir samherjar á Alþingi þótt við deildum líka hart í stöku máli enda valdi hvorugur friðinn ef hann var til orðinn á röngum forsendum að því er við töldum. Hitt hafði ég alltaf þekkt til Marðar Árnasonar að hann reyndist félögum sínum og vinum vel þegar raunverulega þurfti á að halda. Nú voru félagarnir íslenskur almenningur sem vildi að brotið yrði blað í Íslandssögunni. Hingað en ekki lengra yrði haldið á forsendum gróðaaflanna.“
Eitt þótti mér eftirtektarvert og af góðu í fari Marðar og það var hvernig hann axlaði allar byrðar sjálfur, ætlaðist einskis af öðum, aðeins sjálfum sér. Þegar hallaði á kvennaboltann í KR mætti hann á alla leiki kvennaliðanna. Og þegar það rann upp fyrir honum hve mikilvægt væri að fá sjálfboðaliða til starfa beindi hann ekki áskorun til annarra. Hann gerðist sjálfur sjálfboðaliði. Ekki einu sinni heldur þúsund sinnum.
Það var góð tilfinning í dag að lesa minningargreinarnar sem birtust um Mörð Árnason. Björn Jónasson heitinn bróðir minn hefði tekið undir þegar hlýlega var mælt til Marðar. Hann vissi hvern mann hann hafði að geyma.
Ég samhryggist hans fólki, fjölskyldu og vinum.
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)