Fara í efni

MÆLT MEÐ ÞÓRARNI OG NEISTUM

Myndin hér að ofan er tekin af síðu veftímaritsins Neistum.is. Hún kynnir nýtilkomna grein sem Þórarinn Hjartarson hefur sent frá sér um Úkraínustríðið. Grein hans er sérlega upplýsandi, ítarleg en þó jafnframt auðlesin.
Greinin er sláandi þótt margt af því sem fram kemur í henni hafi áður komið fram, þá ekki síst í fyrri skrifum Þórarins sjálfs. Það breytir því þó ekki að ég tel þetta vera nánast skyldulesningu fyrir öll þau sem vilja reyna að komast til botns í ástæðunum fyrir þessu hryllilega stríði. Skilningur á orsökum stríðins er forsenda vitiborinnar umræðu um hvað gera megi til þess að stuðla að því að ófriðnum verið lokið.
Telji einhverjir Þórarin Hjartarson fara með rangt mál þá verði það sagt og rökstutt. Ég þykist vita fyrir satt að hann myndi fagna slíkri rökræðu.
Grenin birtist hér á síðunni undir Frjálsum pennum https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/hver-a-thetta-strid-i-ukrainu
en einnig er hana að finna og þá myndskreytta á vefritinu neistar.is. https://neistar.is/greinar/hver-a-thetta-strid-i-ukrainu/ 

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)