Fara í efni

LÖGBROT Í BOÐI LÍFEYRISSJÓÐA LANDSMANNA

Lífeyrissjóðir landsmanna starfa í skjóli laga. Öllum er gert að greiða í lífeyrissjóði samkvæmt lögum. Þetta virðast lífeyrissjóðirnir bærilega sáttir við. En þar með lýkur stuðningi þeirra við lögin að ekki sé minnst á þau „gildi“ sem lífeyrissjóðirnir segjast halda í heiðri.

Að þessum gildum og ábyrgð er vikið í erindi sem ég hef sent til stjórnar míns lífeyrissjóðs, LSR, vegna nýtilkomins dóms sem kveður á um ólögmæti vínsölu fyrirtækisins Haga sem er í eigu lífeyrissjóða landsins. Samsvarandi bréf hafa verið send til allra lífeyrissjóða landsins og eru sendendur allir félagar í viðkomandi sjóðum.
Þessar bréfasendingar eiga sér fordæmi. Í ágúst 2024 var lífeyrissjóðunum einnig send bréf þar sem óskað var eftir því að þeir beittu sér gegn áformum Hagkaupa (sem eru í eigu Haga og þar með lífeyrissjóðanna) að hefja vínsölu í trássi við lög. (sjá umfjöllun hér, https://www.ogmundur.is/is/greinar/adgerdir-heilbrigdisstetta-og-adgerdaleysi-lifeyrissjoda )


Viðbrögð lífeyrissjóðanna voru í skötulíki. Jákvæð viðbrögð bárust aðeins frá lífeyrissjóðnum Brú. Þau viðbrögð þóttu mér virðingarverð.


(Skjáskot af vefsíðu  Hagkaupa og Haga Wine Veigar - Forsíða.)

Nú hefur fallið dómur þar sem ótvírætt kemur fram að lífeyrissjóðirnir eru að brjóta landslög. Því verður seint trúað að þeir bergðist ekki við af ábyrgð. Eftirfarandi er bréf mitt til stjórnar LSR:

Meðfylgjandi erindi óska ég eftir að verði komið á framfæri við stjórn og varastjórn LSR.
Ágæti framkvæmdastjóri og ágæta stjórn LSR.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins á 13,21% í Högum (A deild 11,38% og B deild 1,83%) samkvæmt vefsíðu Haga 9. apríl sl. Hagar eiga svo aftur verslunina Hagkaup og Hagar Wine Veigar - Forsíða.
Í ágúst 2024 sendi ég sjóðnum erindi um að krefjast þess að Hagar/Hagkaup félli frá áformum um að hefja ólögmæta áfengissölu. Þá var því lýst opinberlega yfir að hefja skyldi netsölu með áfengi og henni lýst þannig að viðskiptavinurinn fái áfengið annað hvort sent heim til sín eða hafi viðkomu í versluninni og fengi áfengið afhent þar. Með öðrum orðum, Hagkaup væri að taka upp smásölu á áfengi en hún er sem kunnugt er óheimil samkvæmt landslögum. Einkaleyfi á smásölunni hefur ÁTVR.
Ekki var orðið við erindi mínu 2024, etv. vegna þess að Hagar héldu því fram að hún væri lögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem þeir höfðu undir höndum en hafa ekki veitt aðgang að. Hér eru dæmi um fréttafluttning frá þessum tíma

Finnur segir Haga í viðræðum við hluthafa vegna áfengissölu – „Fáeinir hafa einnig reifað áhyggjur vegna þessarar starfsemi” - DV

Stór eigandi í Högum harmar opnun áfengissölu Hagkaupa - „Sjóðurinn vill að þau fyrirtæki sem hann fjárfestir í sýni samfélagslega ábyrgð“ - DV

Í haust kærði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sambærilega áfengissölu til Héraðsdóms Reykjaness. Þann 8. apríl sl. féll svo dómur sem sýnir að starfsemi þeirrar tegundar sem lífeyrissjóðurinn stundar, í gegnum eignarhald sitt í Högum, er ólögmæt. Sjóðurinn stendur þannig í ólögmætri sölu áfengis. Slíkt gengur þvert á landslög. Slíkt gengur einnig þvert á heilbrigðisstefnu Íslands til ársins 2030, lýðheilsustefnu Íslands til 2030 sem og reglur og yfirlýst gildi lífeyrissjóðsins um m.a. samfélagslega ábyrgð. Þetta er mál allra landsmanna en auk þess er þetta minn lífeyrissjóður og kemur mér því sérstaklega við.
Þá gengur framferðið einnig þvert á yfirlýst gildi og reglur Haga, en í 1. gr. Siðareglna birgja Haga og dótturfélaga segir m.a. “Hagar leggja ríka áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í allri starfsemi sinni og vilja láta gott af sér leiða í sátt við umhverfi og samfélag. Siðareglum þessum er ætlað að stuðla að því að samstæðan og birgjar hennar verði í sameiningu hreyfiafl til góðra verka. Siðareglur Haga ná til allra birgja samstæðunnar og er birgjum gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.” Í 3. gr. Sjálfbærnistefnu Haga hf. segir m.a “Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga.”
Sem félagi í LSR mótmæli ég því að sjóðurinn eigi í fyrirtæki sem stundar ólöglega starfsemi af þessu tagi og sem félagi í íslenska samfélaginu mótmæli ég því að grafið sé undan þeirri heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu sem samþykkt hefur verið á Alþingi og allar helstu heilbrigðisstéttir landsins og forvarnarsamtök hafa fylkt sér um.
Ég óska hér með eftir því að erindi mitt verði formlega tekið fyrir á stjórnarfundi hið fyrsta og er tillaga mín sú að LSR geri þá kröfu að Hagar stöðvi hina ólögmætu áfengissölu strax. Verði forsvarsmenn Haga ekki við því dragi LSR þegar í stað allt hlutafé sitt úr Högum.
Ef sjóðurinn treystir sér ekki í þessa eðlilegu kröfu, þá verði að minnsta kosti farið fram á að salan verði stöðvuð strax og þar til búið er að tæma dómsferlið í gegnum Landsrétt og eftir atvikum Hæstarétt.
Ég óska eftir því að fá staðfestingu á móttöku þessa erindis svo og efnislegt svar þegar stjórnin hefur fjallað um það.
Með kveðju,
Ögmundur Jónasson,
félagi í LSR
kt. 170748-4099

Fylgiskjal:
Héraðsdómur Reykjaness 8. apríl 2026

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)