LITRÍKRA FÆREYJA VITJAÐ
Myndin hér að ofan fangaði athygli mína á kaffistað í Klakksvík ef ég man rétt. Málarinn heitir Olivar að ég held en í horni myndarinnar stendur Livar.
Mér fannst málverkið um margt skemmtilegt, tilfinningaþrungið og litríkt eins og Færeyjar og Færeyingar birtust mér í vikulangri heimsókn til Færeyja sem stóð fram á nýliðinn fimmtudag. 
Valgerður kona mín, Jógvan Friðriksson, Færeyjabiskup og síðan María Eiríksdóttir, kona biskups
Færeyjaförin var þannig tilkomin að fyrir fáeinum árum stýrði ég málstofu á Arctic Circle þar sem biskupar Norðurlandanna ræddust við. Þeirra á meðal var Færeyjabiskup, Jógvan Friðriksson og tókust með okkur góð kynni. Hann hafði á orði að ég skyldi heimsækja Færeyjar og þá gjarnan flytja kirkjunnar fólki fyrirlestur um vekjandi efni.

Gunnþór Ingason, Þórhildur Ólafs og við hjón
Af þessari heimsókn varð síðan í vikunni. Við hjón vorum ekki ein á ferð heldur var æskuvinur minn Gunnþór Ingason og kona hans Þórhildur Ólafs með í för en Gunnþór er hálfur Færeyingur og eins og fiskur í vatni þegar til Færeyja er komið. Ég fjallaði í erindi mínu um samskipti Íslands og Færeyja en vék síðan að uggvænlegum heimsmálunum í stríðsóðum heimi. Undantekning þar væri friðarviðleitni Kúrda. Þeir réttu fram sátta- og friðarhönd sem nánast enginn þættist sjá. Vildi ég að þar yrði breyting á. 
Gunnþór og Jógvan á Viðareiði. Að baki þeim er bein lína til Íslands
Í ferðinni fórum við all víða undir leiðsögn Færeyjabiskups og konu hans Maríu Eiríksdóttur og nutum frábærrar gestrisni og vinsemdar þeirra hjóna. Lengst norður fórum við til Viðareiði. Þar rísa stundum öldur hátt og getur mönnum staðið hætta af, minnir á Reynisfjöruna okkar. Þarna hafði Jógvan biskup búið um hríð ásamt fjölskyldu sinni. Þegar horft er á sjó út frá Viðareiði má hafa í huga að sæjum við lengra en sjón okkar dugar til myndum við greina Ísland því þar er ekkert land á milli.

Rætt við Súna Selfoss og Önnu Jóhannesen skrifstofustjóra Starvsfélagsins í glæsilegum fundarsal félagsins
En fleira fólk hitti ég í Færeyjarferðinni og urðu fagnaðarfundir með gömlum og góðum vinum úr pólitík og verkalýðsbaráttu frá fyrri tíð. Súna Selfoss, núverandi formann Starvsfélagsins - samtaka opinberra starfsmanna – hitti ég að máli og fræddist um stöðu verkalýðsmála í Færeyjum. 
Í þingsal Færeyjaþings: Hlýtt á Högna Hoydal helsta talsmann færeyskra vinstri manna um áratugaskeið reifa málin
Þá hitti ég gamlan og góðan vin Högna Hoydal sem lengi var formaður Þjóðarflokksins, þingmaður, ráðherra með meiru. Hann hefur nú látið af formennsku í flokknum en er enn áhrifamaður í færeyskum stjórnmálum enda mikill málafylgjumaður, rökvís, sannfærandi og býður af sér einstaklega góðan þokka. Fyrir bragðið nýtur hann velvildar og vinsælda langt út fyrir allar flokkslínur.

Heilsað upp á vini: Birna og Óli Breckmann
Úr allt annarri átt kemur svo Óli Breckmann, fyrrum þingmaður hins hægri sinnaða Fólkaflokks, ritstjóri, kennari og afkastamikill fræðimaður og rithöfundur. Latið ei söguna doyggja, Látið ekki söguna deyja, heitir síðasta bók hans og hefur að geyma sýn hans á stjórnmálasöguna og þjóðlífsmyndir fyrri tíðar. Bókin er í ritröð sem færist sífellt nær samtímanum. Við Óli vorum samferðamenn í námi við Edinborgarháskóla á sínum tíma og tókst þá með okkur góð vinátta þótt um flest værum við ósammála í stjórnmálum. Ég sagði Óla að ég hefði skrifað bók um reynslu mína í stjórnmálum og væri hans þar getið. Bókin bæri heitið Rauði þráðurinn. Í bók með slíkum titli á ég varla heima sagði Óli og hryllti sig. Ég sagði að honum væri vel borgið þegar ég væri annars vegar þótt hvorugur skrifaði upp á skoðanir hins. Við það brosti hann í kampinn. Kona Óla, Birna, er einnig rithöfundur og hefur hún skrifað fjölda barnabóka.

Með fyrrum verkalýðsforingja og góðum vini Gunnleivi Dalsgarð
Svo er það Gunnleivur minn góði vinur frá gamalli tíð. Hann var lengi vel formaður Starvsmannafélagsins eins og það hét þá – maður á færeysku merkir karlmaður og þess vegna var nafninu breytt í Starvsfélag. Alla tíð var afar náið og gott samstarf milli okkar Gunnleivs og tókst með okkur góð vinátta.

Skerpukjöt og rúllupylsa
Nú var heldur betur tekið vel á móti okkur. Þar var mættur Leivur sonur Gunnleivs sem skar ofan í okkur skerpukjöt í dýrlegri veislu á heimili Jónu dóttur Gunnleivs og tengdasonar hans, Högna, sem hafði verið með í Íslandsheimsókn Gunnleivs. Á borðum voru færeyskir réttir, auk skerpukjötsins grindhvalur, kjöt og spik, lúðuréttur gómsætur mjög og margt fleira.

Og enn sýnishorn af matarborði, hér gefur að líta gindhval
Þessi Færeyjaferð verður eftirminnileg og til umhugsunar er hve stutt er landa á milli.

--------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)