KONUR, KÚRDAR, ROJAVA OG MÁNUDAGURINN
Fyrst nokkur orð um konur og baráttu kvenna fyrir jafnrétti:
Þetta er skrifað hinn nítjanda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi. Þennan dag árið 1915 fengur konur á Íslandi, 40 ára og eldri, kosningarétt. Alþingi hafði fjórum árum fyrr samþykkt lög þessa efnis en Danakonungur samþykkti þau hins vegar ekki fyrr en 1915 samfara stjórnarskrárbreytingu. Með sambandslagasamningnum 1918 var 40 ára aldursákvæðið numið úr lögum og fengu konur þar með jafnan kosningarétt á við karla. Ótrúlegt er að þessi mismunun skuli yfirleitt hafa viðgengist og þá einnig hitt að það skuli hafa kostað mikla baráttu að fá úr þessu misrétti bætt.
þessi dagur ætti því að vera tilefni til að huga að kvenréttindabaráttu, ekki síst á slóðum þar sem sú barátta er skammt á veg komin.
Þá nokkur orð um Kúrda:
Kúrdar eru einhvers staðar nærri 50 milljónum talsins og búa að uppistöðu til í fjórum löndum, Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran. Það segir sig sjálft að um allar þessar milljónir er ekki hægt að alhæfa. Þó er hægt að greina sitthvað sameiginlegt í siðum og hefðum.
Í pólitískri menningu framfarasinnaðra Kúrda í Tyrklandi og Norður-Sýrlandi er að finna mjög afdráttarlausa afstöðu til jafnréttis kynjanna. Þessa afstöðu má að verulegu leyti – um það er ekki deilt - rekja til helsta forystumanns Kúrda á þessu svæði, Abdullah Öcalan en hann þykir svo ógnandi við hefðbundna pólitík og siði að í rúman aldarfjórðung hefur honum verið haldið í fangelsi í Tyrklandi.
Abdullah Öcalan er róttækur og vill umbylta þjóðfélaginu í þágu lýðræðis – og jafnréttis. Við bíðum ekkert eftir byltingunni til að tryggja jafnrétti kynjannam, segir hann og bætir því við að það verði einfaldlega engin bylting án þess að tryggja slíkt jafnrétti. Kvenfrelsi sé sjálf forsenda byltingarinnar!
Nýlega horfði ég á myndband sem fjallaði um baráttukonu úr þessum heimshluta fyrir réttindum kvenna. Þá rann það upp fyrir mér inn í hvaða heim Öcalan er að tala og hve róttæk hans rödd er.
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, sendi Abdullah Öcalan frá sér orðsendingu þar sem hann sagði að sósíalismi væri enginn sósíalismi án þess að konur yrðu frelsaðar úr ánauð og án lýðræðis yrði sósíalismi heldur aldrei að veruleika; ofbeldis-, einræðis- og nauðgunarómenning yrði að víkja fyrir lýðræði og jafnrétti kynjanna.: „… Unless the rape culture is overcome, social reality cannot be revealed in the fields of philosophy, science, aesthetics, ethics and religion … the achievement of socialism will not be possible unless the new era destroys the male-dominated culture deeply embedded in society. Socialism can be achieved through women's liberation. One cannot be a socialist without women's freedom … One cannot go for socialism without democracy. My first test of socialism is to know how to talk to a woman. He who does not know how to talk to a woman cannot be a socialist…“
Og svo Rojava:
Rojava er svæði í norðanverðu Sýrlandi sem að uppistöðu til er byggt Kúrdum. Þeim hefur tekist að tryggja sér sjálfstjórn á svæðinu þrátt fyrir skefjalaust ofbeldi og árásir á undanförnum árum. Helsti árásaraðilinn er tyrkneski herinn en einnig sveitir sem tengjast ISIS eða Al Nusra en forystumenn þeirra síðarnefndu, sem eru afsprengi Al-Qaeda samtakanna, voru settir til valda í Damaskus eftir að Assad forseta hafði verið vikið frá völdum. Þar er talið að hafi verið að verki nýlenduveldi gömul og ný, Bandaríkin og Bretland, ásamt Ísrael. Athyglisvert verður að fylgjast með því hvað framtíðin ber í skauti sér.
Það er ærin ástæða til þess að nefna Rojava í tengslum við baráttu kvenna fyrir jafnrétti.
Í fyrsta lagi vegna þess að Rojava hefur iðulega verið í fréttum vegna framgöngu kvenna þar, bæði í vopnaði varnarbaráttu Kúrda gegn Tyrklandsher og sveitum ISIS, en einnig vegna þátttöku kvenna í stjórnmálum í Rojava. Að konum í Rojava hefur hins vegar verið hart sótt. Afturhaldsöflum á svæðinu svíður það að sjá sigursæla baráttu kvenna. Hafa ofsóknir gegn konum í Rojava fyrir vikið verið gríðarlegar af hálfu bæði tyrkneska hersins og íslamskra harðlínumanna.
Hádegisfundurinn á mánudag:
Seinni ástæða þess að ég nefni Rojava er sú að á mánudag klukkan 12 á hádegi verður stuttur en snarpur og vonandi upplýsandi fundur í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík þar sem höfuðsaksóknararnir frá mannréttindadómstólnum, Permanent Poeples´ Tribunal skýra frá niðurstöðum rannsókna á stríðsglæpum og ofbeldi í Rojava á síðustu árum, mannréttindabrotum sem viðgangast fram á þennan dag.
Á þennan fund sem er í fundaröðinni Til rótækrar skoðunar eru allir velkomnir.
-------------------------------------------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/