KÁRI MEÐ LYKILINN AÐ VITIBORINNI UMRÆÐU
Hvatt er til þess að skoðað verði hvað gæti verið í boði í viðræðum við Evrópusambandið. Ég tek undir þá hvatningu en að því leyti að skoðað verði í pakkann ÁÐUR en greitt verði um það atkvæði hvort endurnýja skuli beiðni Íslendinga um að ganga þar inn.
Það væri illa ráðið að mínu mati. Þá afstöðu mína reyndi ég að skýra í viðtali við Gunnar Smára Egilsson við Rauðaborðið á Samstöðinni síðastliðinn miðviukdag (sjá hér https://www.ogmundur.is/is/greinar/vid-rauda-bordid-esb-allt-annad-en-thad-var )
Á meðal þess sem ég lagði áherslu á var i fyrsta lagi hvað það væri sem menn vildu vita annað en hve miklu af því sem við þegar höfum (með aðild að EES samningnum) við fengjum haldið eftir hjá okkur við inngöngu í sambandið. Við værum vel að merkja ekki að fá neitt meira, en hve mikið minna værum við að fá, þetta vilja menn vita. Ávinningurinn segja já-menn væri svo meiri stöðugleiki sem fengist með meðfærilegri („agaðri“) vinnumarkaði og lægri vöxtum. Allt er þetta þó byggt á líkindareikningi, all-glæfralegum á stundum.
Í öðru lagi væri lykilatriði að gera sér grein fyrir því hversu haldgóðar og áreiðanlegar væru hugsanlegar tímabundnar „undanþágur“ frá fullri aðlögun ef samningar um slíkt næðust.
Hér þarf að horfa til stjórnskipunar Evrópusambandsins og reynslunnar sem sagan færir okkur. Þetta fjallar Kári um á heimasíðu minni, bæði í skýrsluformi og örstuttri samantekt (Greining á eignarhaldi, ákvörðunarvaldi og áhrifum Evrópuréttar). Þarna er að finna lykil að auknum skilningi á stöðu okkar sem ég hvet alla til að hafa í hendi. Þennan lykil er að fá hér: https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/natturuaudlindir-og-evropusambandid-greining-a-eignarhaldi-akvordunarvaldi-og-ahrifum-evropurettar
-------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)