Fara í efni

KALLAS OG ZAYAS OG ÝMSIR ÞAR Á MILLI

Rannsókn fer nú fram á því hvort það geti verið að Bandaríkjamenn og Ísraelar eigi sök á loftárás á stúlknaskóla þar sem að minnsta kosti 165 létu lífið, þar af yfir eit hundrað börn. Þetta hlýtur að vera mikið álitamál – eða hvað?

Eða erum við gengin inn draum eða öllu heldur martröð Lísu í Undralandi? Erfitt er að láta sannfærst um að svo sé ekki þegar horft er til þess sem nú er að gerast í heiminum; ekki aðeins frréttafltnings þar sem öllu er á hvolf snúið heldur til dæmis til þess að eiginkona Trumps forseta BNA, Melanie skuli hafa stýrt fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þegar fjallað var um árásarstríð eiginmannsins. Þetta gerði hún í krafiti þess að Bandaríki Norður-Ameríku fara nú með formennsku í ráðinu. Trump forseti sagði þetta sögulegan viðburð og hljóta allir að geta tekið þar undir með honum. Ekkert síður en að það hljóti að fara á spjöld sögunnar að «samningamenn» öflugasta herveldis heimnsins hafi verið vankunnandi tengdasonur þessa sama forseta og braskarar úr viðskiptalífi BNA. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/03/02/melania_styrir_fundi_oryggisrads_sth/

Evrópusambandið þjónar til borðs og sængur

Eftir mannskæðar loftárásir Ísraels og BNA kemur aíðan Evrópusambandið til sögunnart bæði sem heild og einnig einstök aðildarríki og saka Íran um tilefnislaus viðbrögð. Þau séu “óábyrg og handahófskennd” og bitni á saklausum hermönnum og borgurum. Þetta hlóti að kalla á hörð viðbrögð Evrópuríkja.
RÚV segir frá:
“Yfirvöld í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi segjast reiðubúin að verja hagsmuni sína og bandamanna sinna í Persaflóa ef þörf er á með varnaraðgerðum sem beinist gegn Íran. Í sameiginlegri yfirlýsingu segjast leiðtogar ríkjanna skelfdir vegna hefndaraðgerða Írana, sem séu bæði tilviljanakenndar og óhóflegar, og beinist meðal annars að ríkjum sem ekki komu að hernaðaraðgerðum Írans og Bandaríkjanna.
„Kærulausar árásir Írana hafa beinst að nánum bandamönnum okkar og ógna bæði hermönnum okkar og almennum borgurum víða á svæðinu,“ segir í yfirlýsingunni. Kallað er eftir því að Íranir hætti árásunum tafarlaust.
„Við munum grípa til aðgerða til að verja hagsmuni okkar og bandamanna okkar á svæðinu, mögulega með því að gera nauðsynlegar og viðeigandi varnaraðgerðir mögulegar til að eyðileggja getu Írans til að skjóta eldflaugum og drónum.“
Þá hafi ríkin samþykkt að vinna saman með Bandaríkjunum og öðrum bandamönnum á svæðinu.”

Ursula Von der Leyen framkvæmdastjóri Evrópusambandsins segir sökina á því hernig komið sé liggja hjá Írönum: „Fyrir öryggi og stöðugleika á svæðinu er afar mikilvægt að ekki verði frekari stigmögnun vegna tilefnislausra árása Írans á samstarfsaðila á svæðinu.“

Utanríkisráðherra Evrópusambandsins Kaja Kallas toppar þetta allt síðan með sínum yfirlýsingum um að Íranir verði að haga sér eins og menn, skjóta ekki út og suður þannig að aðilar verði fyrir árásum þeirra að tilefnislausu!

NATÓ enn við sama heygarðshornið 

Mark Rutte, forstjóri NATÓ bregst ekki fremur en fyrri daginn sem dyggur þjónn hernaðarauðvaldsins og fetar þar í fótspor forvera sinna hjá NATÓ en Anders Fogh Rassmussen varð frægur að endemum fyrir að vilja að BNA yrði eins konar heimslögregla. Rutte segir það líka hreint út. Báðir hafa þessir menn verið forsætisráðherrar, annar í Danmörkum, hinn í Hollandi.

 

Morgunblaðið 7. mars.

Og nú segir frá því í fréttum að svo kunni að vera að Rússar hjálpi Írönum í árásum á Bandaríkjamenn. Við því þurfi að bregðast. Það er þetta sem kallast stigmögnun stríðs og eru margir tilbúnir að gerast þar þátttakendur. Þar ganga hart fram gömlu nýlenduveldin í Evrópu, þau öfl sem ríkisstjórn Íslands hvetur nú til fóstbræðralags við! 

En svo eru til aðrir með eftrisóknarverðari afstöðu og að mínu mati óbrenglaðri  dómsgreind.

Ég hef áður vitnað í Alfred de Zayas, gamalreyndan talsmann mannréttinda hjá Sameinuðu þjóðunum og höfund merkilegra bóka um alþjóðastjórnmál – fyrirlesari í Safnahúsinu í Reykjavík í september 2024. Hér má nálgast viðtal Karls Héðins Kristjánssonar við Alfred de Zayas á Samstöðinni: https://www.youtube.com/live/w3006HTNN9c 

Hann sendi frá sér orðsedingu í gær þar sem hann segir að þau ríki séu samsek Bandaríkjunum sem fallist á að árás BNA á Íran hafi verið til þess að koma í veg fyrir stríð af hálfu Írana. Réttlætingin sé jafnvel enn veikari en fyrrir árásinni á Írak árið 2003 undir því yfirskini að af Írökum stafaði ógn vegna meintra “gereyðingarvopna þeirra”. Vesturlönd hafi grafið undan alþjóðalögum allar götur frá 1991 og þar með eigin trúverðugleika, Þetta sé "glæpsamlegur kapítalismi" að verki:

“We are complicit in the US/Israel aggression against Iran if we accept the pretext that this was a "preemptive war". This time the pretext is even weaker than in 2003 with Hussein's alleged "weapons of mass destruction".
We are complicit if we go along with the obviously false narratives coming out from Washington, Tel Aviv and Brussels. We let ourselves be lied to, and even when knowing our intelligence is being insulted, we let it happen.
Since 1991 the collective West has been sabotaging international law -- and with it its own credibility. Iraq was a test run for everything else that followed: undemocratic regime change in Iraq, then in Libya, then in Syria, now in Iran.

The G-7 is as complicit in the US/Israeli crimes as it was back in 2003 when it also met in the Royal Hotel in Evian and rolled out the red carpet for the arch-criminal George W. Bush, barely weeks after the aggression on the people of Iraq.
"Business as usual" is the mantra of criminal capitalism. The G-7 will be meeting in Evian 15-17 June. If they had any sense of morals and commitment to peace and international law, they would cancel the meeting.
The logical response to the illegal US/Israel assault on the Iranian people is to BDS the US and Israel. Boycott, divest, Sanction -- no more purchases of F-16, F-35, Boeing. Divest from US Treasury bonds and US stocks. Stop selling rare earths to the US/Israel.”

Sjá hér ennfremur viðtal við Alfred de Zayas hjá Global Times: US-Israel strikes on Iran signal a ‘worrying shift in the paradigm of modern warfare’ - Global Times

----------------------------------

 

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)