Fara í efni

KAFFIBOÐ HJÁ GUÐRÚNU

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 27/28.06.26.
Ég hef farið allvíða að undanförnu, nú síðast sótti ég ráðstefnu gegn vígvæðingu í London, hitti þar baráttufélaga úr verkalýðshreyfingu og stjórnmálum, en auk þess marga aðra vini sem ég hef eignast á þeim rúmlega sextíu árum sem liðin eru frá því ég komst í eins konar ástarsamband við þessa borg, þá sjálfur innan við tvítugt.

London var sjálfri sér lík, tók vel á móti gesti sínum þótt hitastigið væri yfir þolanlegum mörkum. Þangað kom ég frá sögufrægri og fagurri Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, þar sem dómnefnd sem ég átti sæti í hafði fundið verðugan viðtakanda mannréttindaverðlauna. Fljótlega bíður mín svo Strassborg í Frakklandi þar sem ég sæki fund fastanefndar Evrópuráðsins - ekki Evrópusambandsins vel að merkja - sem fjallar um kynþáttafordóma og umburðarleysi. Ég hef verið fulltrúi Íslands í þessari nefnd um árabil.

Ég nefni þetta til að minna á eftirsóknarvert samstarf þvert á landamæri. Í ljósi komandi atkvæðagreiðslu um umsókn Íslands að Evrópusambandinu varð mér hugsað til þess að samvinna á sviði vísinda, mennta, menningar og mannréttinda nær að blómstra óháð aðild að því sambandi. Og hvað okkur varðar með EES samning upp á vasann nær þetta samstarf einnig til atvinnu- og búseturéttar svo og viðskipta. Skal hér enn áréttað að fyrir minn smekk var gengið alltof langt undir pilsfald ESB með inngöngu Íslands í hið Evrópska efnahagssvæði. Að vilja ganga lengra felur ekki í sér neitt annað en afsal á réttindum.

Á ráðstefnunni í London gegn vígvæðingu var hvatt til þess að fólk risi upp gegn hernaðarbrjálæðinu sem magnast nánast dag frá degi í vestri og austri; Kanar orðnir glórulausir, breska stjórnin hefði fallist á tugmilljarða kröfur hersins um vopnakaup, svo að ekki væri minnst á Evrópusambandið. Von der Layen, Friedrich Merz, Macron, reyndar allur forystuhópurinn, tali blygðunarlaust fyrir vígvæðingu, vilji vopn á kostnað velferðar því að forgangsmál sé að undirbúa stríð og ekki bara stríð heldur stríð með kjarnorkuvopnum!

Þetta eru öflin sem almenningur þarf að verjast.

Guðrún Agnarsdóttir læknir og alþingiskona var ein þeirra lækna gegn kjarnorkuvá sem fóru að safna liði á níunda áratugnum. Svo gerðist eitt af öðru þar til að almenningur reis upp og til varð afvopnunarsamningur.
Þarf ekki að fara að bjóða í kaffi aftur Guðrún?

-------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)