Fara í efni

JEFFREY SACHS:SNÝST UM HEIMSYFIRRÁÐ, EVRÓPUSAMBANDIÐ FÆR FALLEINKUNN

Norski fræðimaðurinn Glenn Diesen ræddi í dag við bandaríska stjórnmálagreinandann Jeffrey Sachs um atburði undangengins sólarhrings, árás Ísraels og Bandaríkjanna á Íran og viðbrögð Írana. Þetta hafi aldrei snúist um annað en heimsyfirráð BNA, segir Sachs, alheimsstríð um alheimsyfirráð. Evrópuríkin fá ekki háa einkunn hjá Sachs, "vassal states", lénsríki BNA. Kanada styður Trump (Carney forsætisráðherra sem flutti  "tímamótaræðuna" í Davos er styðjandi), Ástralía styður hann einnig og Evrópusambandið sem samstundis var komið á hnén eins og fyrri daginn. Þar er ríkisstjórn Íslands einnig mætt. Virða beri alþjóðalög en... allt er þetta Íran að kenna. 
Hér eru samræður þeirra Diesens og Sachs: Jeffrey Sachs: US & Israel Attack Iran - War Is Spreading Across the Region

----------------------------------

 

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)