ÍSLANDS AÐ GÓÐU GETIÐ
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 17/18.10.26.
Fyrr á þessu ári tók ég þátt í rannsóknarleiðangri til Rojava, til skamms tíma sjálfsstjórnarhéraðs Kúrda í norðanverðu Sýrlandi. Sjálfsstjórnin var við lýði frá árinu 2012 og varði fram á þetta ár en er nú svipur hjá sjón eftir valdaskipti í Damaskus. Í hálfan annan áratug höfðu Kúrdar notið eins konar friðarsamkomulags við Sýrlandsstjórn sem var aðþrengd vegna átaka við sameiginlegan óvin, liðsmenn hins íslamska ríkis.
Kúrdar fengu einnig skjól af nýlenduveldum, gömlum og nýjum, sem unnu að því að koma Assad Sýrlandsforseta fyrir kattarnef með staðgengilshernaði og grimmilegum viðskiptaþvingunum sem Íslendingar tóku þátt í eins og jafnan þegar þeir fá slík fyrirmæli frá «vinaþjóðum».
Ástandið á þessum slóðum er flókið og til að gera flækjuna enn flóknari má geta þess að íslamistum í Sýrlandi hefur hin síðari ár verið stýrt frá NATÓ-ríkinu Tyrklandi þannig að hagsmunir «vinaþjóðanna» hafa gengið út og suður og iðulega stangast á.
Eitt var þó ljóst, að það voru Kúrdarnir sem réðu niðurlögum íslamska ríkisins og nutu þess sigurs með því að fá haldið sjálfsstjórn í Rojava.
En á þessum slóðum er olía og það veit aldrei á gott að hafa hana undir fótum. Til að gera langa sögu stutta tókst í árslok 2024 að hrekja Assad frá völdum og setja í hans stað al Sharaa, sem þekktur var undir stríðsheitinu al Jolani þegar hann var foringi Al-Nusra, hliðargrein Al-Qaeda. Þá var hann eftirlýstur hryðjuverkamaður, en þykir nú stofuhæfur í Washington, London, París og Tel Aviv svo nefndar séu höfuðborgir þeirra ríkja sem hann á völd sín að þakka, auk að sjálfsögðu Tyrklands.
Og nú berast fréttir af því að olían í norður Sýrlandi sé tryggilega komin í hendur olíuauðhringa, búið að opna fangabúðirnar þar sem Kúrdar höfðu geymt fyrrum kúgara sína og að þrýst sé á að Kúrdar aðlagist nýju valdakerfi.
Þetta er ramminn um þá mynd sem fyrrnefndur rannsóknarleiðangur gekk inn í þegar hann bar að garði í Rojava í febrúarbyrjun. Við hittum fyrir fólk sem lýsti því hvernig þrengt væri að lýðræðinu, réttarkerfinu, kynjajafnréttinu og tungumálinu. Líflát, ofsóknir og pyntingar væru daglegt brauð og Sharia dómstólar kæmu í stað réttarkerfis byggðu á jafnrétti þegnanna.
Um þetta var gerð skýrsla sem fyrir fáeinum dögum var kynnt í stöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf. En á brattann er að sækja. Aðeins fulltrúar fjögurra sendinefnda í Genf mættu til fundarins, Kína, Frakklands, Albaníu og viti menn – Íslands.
Þá varð ég stoltur af okkar fólki.
--------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)