Fara í efni

Í MINNINGU SVERRIS KR. BJARNASONAR

Tíminn flýgur. Mér varð hugsað til þess þegar ég sá andlátsfregn gamals félaga míns og vinar frá þeim árum sem ég starfaði í Sjónvarpinu, Sverris Kr. Bjarnasonar.

Ég sé að hann var orðinn 86 ára gamall þegar hann féll frá. Í mínum huga eru gömlu félagarnir frá sjónvarpsárunum, ekki síst þeir sem ég átti mest saman að sælda við í Starfsmannafélagi Sjónvarps, nánast aldurslausir. Þess vegna kom mér hár aldur Sverris nánast á óvart enda var hann innan við fertugt, 38 ára gamall, þegar ég kom til starfa á þessum bæ haustið 1978. Og nú var hann að nálgast nírætt. Hvar skyldi ég þá vera staddur, aldurslaus maðurinn?

Það er einmitt hinn aldurslausi þanki sem ég vil vekja athygli á í minningu Sverris Kr en hann snýr að mikilvægi samstöðunnar um góðan málstað. Okkar málstaður hjá Starfsmannafélagi Sjónvarpsins og einnig í heildarsamtökum okkar, BSRB, var að standa vaktina fyrir hönd hins almenna starfsmanns gagnvart stjórnendum, ekki aðeins í okkar stofnun heldur allra stofnana, og síðan vildum við hafa áhrif lengra út í þjóðfélagið. Í þessu sáum við mikilvægi verkalýðssamtaka. Þau væru í senn baráttusamtök en einnig mótvægi við þau öfl sem hafa völdin á hendi í þjóðfélaginu. Starfsmannafélag Sjónvarpsins leit jafnan svo á að með aðkomu okkar að ákvarðanatöku yrðu ágreiningsmál auðleystari og réttlátari lausnir fengjust en ella.

Starfsmannafélag Sjónvarpsins mætti jafnan velviljað en samheldið að viðræðuborði hvort sem var innan veggja Sjónvarpsins eða í ráðuneytum. Viðmælendur okkar vissu fullvel að ekki yrði kokgleypt við öllu af okkar hálfu; það þekktu þeir af reynslu, harðvítugri verkfallsbaráttu og annarri baráttu fyrir réttindum starfsfólksins. Þetta byggði aftur á afstöðu félagsmanna og vilja þeirra til þess að standa þessa vakt.

Og kem ég þar að Sverri Kr. Hann var ekki maður sem auðgengið var yfir. Jaxlar á borð við hann tryggðu í það minnsta alvöruviðræður um sérhvert mál sem upp kom. Á slíka menn var hlustað, orð þeirra voru tekin alvarlega.

Ég hef stundum hugsað það í seinni tíð hve miklu skilvirkara þetta samskiptaform var á milli starfsmannasamtaka og stjórnenda en það fyrirkomulag sem hefur verið innleitt í seinni tíð þar sem sérfræðingum sem svo eru kallaðir er falið að komast að hinni vísindalegu niðurstöðu. Þar vísa ég til svokallaðra mannauðsfræða og mannauðsstjóra. Þeir eru eflaust margir hverjir góðra gjalda verðir en þeir byggja á allt annarri nálgun en þeirri sem við Sverrir Kr og félagar okkar í Starfsmannafélagi Sjónvarpsins byggðum á fyrir nær hálfri öld.

Mér þótti miður að geta ekki verið við útför Sverris sem fram fór fyrir rúmri viku sökum fjarvistar frá landinu. Verð ég því að láta nægja að hugsa til hans og minnast hans með þessum orðum.
Ég geymi minningar um traustan félaga sem stóð sína vakt eins og best var á kosið og reyndist mér alla tíð traustur félagi og vinur.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)