Fara í efni

HÚMANISTAR KALLA EFTIR FRIÐI – HUMANIST WORLD FORUM CALLS FOR PEACE

Fimmta heimsþing Húmanista er nýafstaðið. Niðurstaðan var skýr: Friðarákallið verður að koma úr grasrótinni. Undir þetta get ég heilshugar tekið enda gerði ég það í ávarpi sem mér var boðið að flytja á þinginu.
Ákallið þarf að koma að neðan einfaldlega vegna þess að stjórnendur heimsins kynda undir ófriði. Ef ekki á illa að fara – nógu illt er það þegar – verður almenningur að taka í taumana.

Mér fannst ég vera í góðum félagsskap á heimsþingi húmanista, fólks sem talaði fyrir friði, friðsamlegri sambúð og friðsamlegum leiðum til að leysa úr ágreiningi. Þetta eru ekki raddir sem fá aðgang að heimsfjölmiðlunum þessa dagana. Þar fá hinir herskáu og óbilgjörnu sviðið. Og almenningur lætur sér gott lynda.

Hér er slóð á ávörpin sem flutt voru á heimsþinginu, þar á meðal mínu:

The Fifth Assembly of the World Humanist Forum has concluded: “The path to the Universal Human Nation is built every day from the grassroots up”

Ég vísaði í uppgang peningafrjálshyggjunnar undir lok aldarinnar sem leið og hvernig hún hefði breytt afstöðu fólks til hins verra, hvernig vopnaiðnaðurinn hefði gert slíkt hið sama en vísaði síðan í það hverju almenningur hefði fengið áorkað með því að taka höndum saman á níunda áratugnum; knúið valdhafa að samningaborði um fækkun vopna og til þess að leita friðsamlegra lausna í stað þess að beita ofbeldi. Þetta varð tími afvopnunar gangstætt því sem við sjáum nú. Þessu verður að breyta – ef mannkynið ætlar á annað borð að komast af.

Því má bæta við - og verður að bæta við - að hernaðarofbeldi er oftar en ekki vegna þess að nýlenduvargurinn ásælist auðlindir annarra þjóða og yfirráð yfir þeim. Einnig þarna þarf almenningur að láta til sín taka, þarna er ekki um neitt að semja heldur þarf yfirgangi og ofbeldi að linna.

Eitt er víst að það er eitthvað mikið sem þarf að gerast ef ekki á illa að fara – og það þarf að gerast í grasrót samfélagsins – hjá mér og þér – út á það gekk ákall heimsþings húmanista:

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)