Fara í efni

HLÍFIÐ ÞESSUM MANNI – HANN GETUR ENGU LOFAÐ

Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakka, er mættur til Íslands að mæla með því að Íslendingar fari að ráðum Viðreisnar og endurnýi umsókn um aðild að Evrópusambandinu.

Ekkert að óttast sagði Jean-Noël við fjölmiðla, um að gera að kíkja.

Hann var spurður hvort Íslendingar gætu fengið undanþágu til að ráða einir yfir sjávarauðlind sinni til frambúðar. Hann kvað ekki tímabært að ræða það.

Samkvæmt mínum skilningi er þessi spurning óviðeigandi einfaldlega vegna þess að maðurinn getur ekki svarað henni og ætti að hlífa honum við henni. Gagnvart okkur sem greiðum atkvæði í ágúst er hún beinlínis blekkjandi og afvegaleiðandi. Hún skapar þá ranghugmynd að eitthvað sé gerlegt sem er það alls ekki.

Jean-Noël Barrot er ráðherra í dag en ekki endilega á morgun. Sama á við um allan mannskapinn sem kæmi til með að spjalla við milligöngumenn Íslands. Þeir eru í tímabundnum stöðum. Samningar sem þau gera eru líka tímabundnir.

Grunnsáttmálar ESB eru hins vegar til að vera. Það eru þeir sem skipta máli og samkvæmt þeim fellir dómsvald Evrópusambandsins úrskurði sína.

Grunnsáttmálar ESB taka vissulega breytingum og hafa heldur betur gert það á síðustu áratugum. En þeir eru lagaramminn sem einn gildir á sama hátt og stjórnarskrám ríkja er ætlað að gera nema hvað að í tilviki ESB er grunnsáttmáli sambandsins sá sem er ákvarðandi, ekki stjórnarskrár aðildaríkjanna hvað þá lög þeirra.

Samkomulag sem Jean-Noël Barrot og samferðamenn hans í pólitíkinni kæmu til með að gera er þess vegna ekki til þess að treysta á. Um það talar reynslan skýru máli. Spyrji menn Breta, spyrji menn Íra um samkomulag sem þeir töldu sig hafa í hendi um fiskveiðar.

--------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)