GJÖF VIÐ HÆFI
Erdogan Tyrklandsforseti var gestgjafi leiðtogafundar NATO í vikunni. Að loknum fundinum, sem þótti takast með eindæmum vel svo mikil var eindrægnin, voru gestirnir leystir út með gjöf – hlaðinni skammbyssu ásamt skotfærum.
Forsætisráðherra Íslands kvaðst sjá það fyrir sér að byssan yrði varðveitt á safni, þjóðinni til sýnis.

Á Íslandi þótti það fréttnæmt af þessum fundi að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði heilsað Kristrúnu Frostadóttur með handabandi enda kvað hún það vera „hlýtt“ á milli sín og Trumps. Að kvöldi fundardags NATÓ upplýsti sami Trump að framhald yrði á árásum á Íran. Að öðru leyti var þagað um Íran nema að ítrekað var að Íranir mættu aldrei eignast kjarnorkuvopn á borð við „okkar“ og að sjálfsögðu var þagað um samviskufangana í tyrkneskum fangelsum en þeir skipta tugum þúsunda.

Í fjölmiðlum var greint frá því að mikil gleði ríkti í NATÓ yfir því hve vel gengi að hækka framlög til vopnakaupa. Þegar nálguðust NATÓ löndin í Evrópu fyrri skuldbindingar um að verja 4% af vergri landsframleiðslu til hermála – og takið eftir, ekki 4%af útgjöldum ríkisins heldur af vergri landsframleiðslu sem er miklu meira. Árið 2035 er stefnt að því að 5% af vergri landsframleiðslu gangi til hermála. Aukningin í útgjöldum til hernaðar milli áranna 2024 og 2025 næmi 90 milljörðum Bandaríkjadala, sagði Rutte framkvæmdastjóri NATÓ stoltur – og komu þá upp í huga minn ummæli Stoltenbergs, forvera hans, á fundi hjá Heritage foundation í Washington í árasbyrjum 2024, þess efnis að það mættu bandarískir vopnaframleiðendur vita að NATÓ löndin í Evrópu ættu eftir að reynast góður markaður fyrir þá. https://www.ogmundur.is/is/greinar/norskur-krati-bugtar-sig-i-washington
Þetta er sem sé stemningin vestan hafs og austan. Íslendingar rembast við það í ósjálfstæðri fylgispekt sinni að fylgja þessari þróun þótt hægar fari. Hér þykir mér þörf á róttæku endurmati – og gagnrýnu sjálfsmati – nokkuð sem ekki mun fást í fundarsölum í Brussel.
Í auglýsingu á samfélagsmiðli sé ég unga konu nánast klökkna þegar hún fagnar því að NATÓ hervélar komi hér í vaxandi mæli til að gæta að öryggi okkar – en gagnvart hverjum? Það var látið ósagt því „óvinurinn“ hefur minni viðveru í Norðurhöfum en nokkru sinni i seinni tíð. Hins vegar er þetta í góðu samræmi við ráðleggingar Rand-hugveitu Pentagon um að framkalla víxlverkandi vopnakapphlaup sem komi „óvininum“ efnahagslega i koll. Eðlilegt er því að spyrja hvort þessar mengandi heimsóknir geri hið gagnstæða við það sem af er látið; þær ýti undir vopnakapphlaup, skapi þar með ófriðarhættu og dragi þannig úr öryggi okkar. https://www.ogmundur.is/is/greinar/hafid-thid-lesid-rand-report-1
Eftirfarandi tvö skjáskot eru úr ráðgefndi skýrslu Randstofnunarinnar frá 2019 (löngu fyrir imnrás Rússa í Úraínu) en í henni er lagður grunnur að stefnu NATÓ ríkjanna fyrir árin sem í hönd fóru og er þessum ráðleggingum enn fylgt:


Í mínum huga leikur enginn vafi á því að raunveruleg ógn stafar af stigmögnun hervæðingar. Einhvern tímann var því lýst svo að ef allt er fljótandi í bensíni þurfi engu við að bæta í rándýrum búnaði, bara eina litla eldspýtu til að allt fuðri upp.
Það er vit sem þörf er á en ekki vopn. Það er tímanna tákn og segir sitt um hjarðmennsku samtímans að á valdastólum Evrópu skuli enginn fyrirfinnast sem hefur kjark til þess að rísa gegn hervæðingunni og tala máli friðar; enginn sem afþakkar byssu!
Afleiðingar þeirrar gegndarlausu vígvæðingar sem við verðum nú vitni að munu koma fram fyrr en síðar. Vígvæðingin er nefnilega ekki ókeypis, niðurskurður til velferðarmála er þegar boðaður í nánast öllum ríkjum NATÓ. Og þótt sumum nægi ekki að heyra um hermálaráð ESB og sjá hermenn í herbúningum merktum ESB þá er það nú staðreynd að Evrópusambandið færir sig skref fyrir skerf í átt að samræmdum herafla. Þegar er utanríkis- og það sem kallað er „varnarmálastefna“ ESB samræmd, að ógleymdum útgjöldunum sem þegar eru nefnd.
Aðför drápsiðnaðarins að lífskjörum almennings mun fyrr en síðar segja til sín og hafa gríðarlegar samfélagslegar afleiðingar. Þetta er alvara þótt sú dauðans alvara í orðsins fyllstu merkingu sé einnig til staðar, að hergagnaiðnaðinum takist að setja allt í bál og brand – og þar með tryggja vöxt sinn og viðgang í óskalandinu sem Jens Stoltenberg hét vinum sínum um árið.
Þegar allt kemur til alls var byssan vel við hæfi í þessum félagsskap. Kannski er það einmitt góð hugmynd hjá Kristrúnu forsætisráðherra, að hafa hana til sýnis til að minna okkur á hvað beri að varast; gagnvart hverjum það er sem við þurfum að verjast.
Forsætisráðherra Íslands lýsti NATÓ fundinum í Ankara sem einstaklega geðfelldri samkomu, hlýja hefði einkennt hana.
Það væri ráð að forsætisráðherra Íslands íhugi hvort sú stund kunni að vera runnin upp að hugleiða beri valkosti við byssuna.
Sjálfur kýs ég blómin hennar Guðmundu G.G. sem skrifaði um Þau í vefmiðli Vísis í gær: https://www.visir.is/g/20262907747d/thad-er-alltaf-til-byssa.-vertu-blomid-
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)