GAZA OG HUGMYNDAHEIMUR NÝLENDUVELDA - THE COLONIAL MENTALITY
Phil Miller frá DECLASSIFIED UK ræðir hér við Daniel Levy, fyrrum samningamann Ísraels, nú gagnrýnanda ísraelskra stjórnvalda um ráðagerðir Trumps Bandaríkjaforseta varðandi Gaza.
Samræða þeirra tekur aðeins um fimmtán mínútur en leiðir margt í ljós því að vísað er bæði í fortíð, samtíð og framtíð með það fyrir augum að hlustendur fái betur skilið sögulegt samhengi.
Umhugsunarvert þykir mér að hugleiða tvískinnunginn hjá BNA og Evrópuríkjum varðandi Grænlendinga annars vegar – þá fásinnu að halda þeim utan gátta í samræðu um framtíð Grænlands - og hins vegar varðandi Palestínumenn sem ætlað sé að taka við því sem fulltrúum nýlenduvelda, gamalla og nýrra, þóknast að veita þeim.
Mæli með því að hlusta á þessa stuttu samræðu: https://www.youtube.com/watch?v=lun4ZVPwgY4
----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)