GAZA Á HORNINU OG FRAMSÓKN RÆÐIR FRAMTÍÐINA
Á fróðlegum fundi sem Til vinstri við ESB efndi til um síðustu helgi á Horninu í miðbæ Reykjavíkur voru flutt tvö afbragðsgóð erindi, annars vegar af hálfu Haraldar Ólafssonar, formanns Heimssýnar, sem fór almennt yfir stöðu ESB-umræðunnar eins og hún blasti við honum og hins vegar flutti Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og forystumaður í félaginu Ísland Palestína um áratugaskeið, erindi um aðkomu Evrópusambandsins að þjóðarmorðinu á Gaza.
Ég hef trú á því að Sveinn Rúnar muni birta erindi sitt eða úrdrátt úr því þannig að ég læt ógert að fjölyrða um það hér, en nefni þó að hann sýndi fram á að Evrópusambandið og mörg aðildarríki sambandsins veita Ísrael afgerandi hernaðarlegan stuðning í aðförinni að Palestínumönnum og eru þar með meðábyrg í þjóðarmorðinu á Gaza.

Í gær var endanlega ákveðið að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu í ágústlok. Ákveði Íslendingar að gerast aðildarríki sambandsins verðum við að undirgangast utanríkisstefnu ESB og axla siðferðilega ábyrgð sem því fylgdi – einnig fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Það er margt gott um þjóðaratkvæðagreiðslu að segja og kosningar almennt. Einkum það þó að við sjáum okkur þá knúin til þess kafa í mál, kryfja þau og reyna að öðlast á þeim skilning.

Í vikunni var ég á fróðlegum og fjörugum fundi í Reykjavík sem Framsóknarflokkurinn stóð fyrir. Þar voru flutt erindi þar sem framsögumenn komu að aðildarumsókninni úr ýmsum áttum. Að loknum framsögum fóru síðan fram almennar umræður og kvaddi fjöldi fólks sér hljóðs.
Eitt hreyfði sérstaklega við mér, kannski vegna þess hve einfalt það var þegar á annað borð hafði verið á það bent. Ungur maður af landsbyggðinni kvaddi sér hljóðs, bað þá fundarmenn sem kæmu utan af landi að rétta upp hönd. Það voru allmargir. Þar með hafði hann dregið línu um áherslur sínar. Það er nefnilega svo sagði hann að okkur á landsbyggðinni þykir stjórnsýslan í borginni vera okkur fjarlæg, við hreinlega náum ekki eyrum hennar og þegar fjármunum er ráðstafað í Reykjavík endum við óþægilega oft sem afgangsstærð. Jánkað var úti í sal af hálfu liðssveitarinnar sem hann hafði kallað fram með handauppréttingu.
Síðan klykkti ræðumaður út með spurningu: Hafa menn hugleitt það að þessi einfalda formúla gæti gilt víðar þar sem langt er á milli handhafa valdsins annars vegar og hinna sem þurfa að lúta því vald?
Fari svo að Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki þá er það verðugt að íhuga þessa ábendigu um fjarlægð og nálægð við valdið.
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)