FUNDAÐ Á SNÆFELLSNESI UM EVRÓPUSAMBANDIÐ
Ég verð í góðum hópi í félagsheimilinu Breiðabliki á Snæfellsnesi mánudaginn 20. apríl, klukkan hálf átta, að ræða hvaða afleiðingar það hefði fyrir Íslendinga að ganga inn í Evrópusambandið.
Málið er risavaxið því það felur í sér gerbreytta stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, skerðingu á fullveldi þjóðarinnar og þar með lýðræðislegu valdi og alvarleg hlýtur einnig að teljast sú staðreynd að ákvörðun um inngöngu í ESB er í reynd óafturkræf um langan aldur.

Í morgun var ég kallaður fyrir utanríkismálanefnd Alþingis að standa fyrir máli mínu en ég hafði sent inn umsögn um málefnið. Umsögn mín hefst á þessum orðum:
"Á heimsvísu er staða okkar Íslendinga einstök. Við erum fámenn þjóð með yfirráð yfir einhverjum gjöfulustu fiskimiðum heims, með nægilega orku til sjálfbærni, nær sjúkdómafría bústofna, félagslega stjórn á mikilvægustu innviðum, herlaus og í kjörstöðu til að koma fram sem óháðir friðflytjendur."
Öllu þessu er kastað fyrir róða verði Ísland innlimað í evrópskt sambandsríki en ESB stefnir hraðbyri í að verða slíkt ríki. Þessu mun ég nánar gera grein fyrir síðar hér á heimasíðu minni og í Breiðbliki verður þetta að sjálfsögðu til umræðu.

-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)