Fara í efni

FRÁ TOBIN TIL ZUCMAN

Í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar setti bandaríski Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, James Tobin, fram hugmyndir um skatt sem hlaut vinnuheitið Tobin-skattur en hugmyndin var sú að skattleggja gjaldeyrisviðskipti til þess að draga úr braski á gjaldeyrismörkuðum. Með þessu móti yrði stuðlað að stöðugleika í alþjóðlega hagkerfdinu að mati Tobins. Skatturinn átti að nema innan við eitt prósent, jafnvel vera nær 0.01% af gjaldeyrisviðskiptum en jafnvel í lægri kantinum myndi þessi skattlagning geta skilað álitlegum upphæðum. Humyndin vakti mikla athygli og var víða tekin upp a þjóðþingum, meðal annars hér á landi og hafði ég frumkvæði að því.

Á þessum grunni voru ATTAC samtökin stofnuð 1998. Skammstöfunin kemur af frönsku heiti þeirra enda voru þau stofnuð í Frakklandi, Association pour la Taxation des Transactions financières et pour l‘Action Citoyenne (Association for the Taxation of financial Transactions and Citizen‘s Action á ensku, Samtök um skattlagningu í almannaþágu á fjármagnsflutninga). ATTAC-samtökin (Íslandsdeild var stofnuð 2009) vildu skattleggja alþjóðafjármagnið og nýta afraksturinn í þágu samfélagsins.

Þetta kemur upp í hugann þegar nýr spútnik kemur upp í alþjóðlegri umræðu um skatta á ríkidæmi og brask. Þetta er franski hagfræðingurinn Gabriel Zucman, Hann segir vonlítið að ná árangri gagnvart hinum ríku með tekjuskatti. Þess í stað eigi að beina skattlagningunni að eignum þeirra, að sjálfu ríkidæminu. Greinilegt er að Zucman er að ná eyrum almennings á sama hátt og Tobin gerði á sínum tíma. Spurningin er hvort takast megi að safna liði til stuðnings þessari hugmynd. Þetta hvetur þáttagerðamaðurinn Rutger Bregman til að verði gert en á slóðinni hér að neðan má nálgast samræður þeirra tveggja, Zucmans og Bregmans á youtube. Samræðan tekur aðeins rúmar tuttugu mínútur og er fróðleg.

Gabriel Zucman is here interviewd by Rutger Bregman on his ideas of taxing the rich, not by incomes but by wealth. In this concise interview we are lead through the development of taxation of the rich. In my forewords I remind of attempts to introduce the Tobin tax on currency transactions in the 1970s and onward and how the radical ATTAC association was based on those ideas (Association pour la Taxation des Transactions financières et pour l‘Action Citoyenne ,Association for the Taxation of financial Transactions and Citizen‘s Action).

Landscape: 9-9 3761_2026-09-11_18-11-54.mp4

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)