Fara í efni

FÖRUM AÐ DÆMI G.G.G!

Ég var spurður að því í dag hvað væri til bragðs að taka gegn hervæðingarfárinu sem nú ríður yfir heiminn. Spurningin hafði reyndar lengi leitað á mig.

En svarið var mér nú orðið augljóst og að bragði sagði ég að við ættum að fara að dæmi Guðmundu G. Guðmundsdóttur sem skrifaði grein á vísi.is fyrir fáeinum dögum sem bar titilinn Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni. Guðmunda lét mig einnig fá greinina til birtingar hér á síðunni í dálkinum Frjálsir pennar: https://www.ogmundur.is/is/frjalsir-pennar/tolum-hatt-og-stolt-um-frid-segjum-nei-vid-hervaedingunni

Grein sína byggir Guðmunda á rannsókarstarfi og vísar hún ítarlega í heimildir. Upp í hugann kemur hve mjög grasrótarstarf Guðrúnar Agnarsdóttur læknis, síðar alþingismanns, hreif mig þegar hún tók á sinn hógværa en einarða hátt að blása til baráttu gegn kjarnorkuvígbúnaði á árunum upp úr 1980. Hún tók þá að bjóða fólki í hópum heim til sín til þess að ræða kjarnorkuvána og safna liði gegn vígvæðingu. Sjálf hafði hún lagst í rannsóknarvinnu og gat fyrir bragðið talað af þekkingu og kveikt í okkur hinum.
Hún skildi að til að ná árangri þurfti að plægja jarðveginn, sá til skilnings, þá fyrst væri uppskeru að vænta. Víða vestan hafs og austan voru einstaklingar að verki á þennan hátt í grasrótinni á þessum tíma og fyrr en varði var orðin til öflug hreyfing. Þetta þarf að gerast á ný.

Það er vissulega þyngra fyrir fæti nú en áður svo rækilega hefur hergagnaiðnaðurinn komið ár sinni fyrir borð. En ef við sem flest sláumst í för með þeim sem bjóða ofbeldisöflunum birgin, segja nei við hervæðingunni og tala hátt og stolt um frið, þá kemur að því að landið fer að rísa á forsendum friðelskandi fólks.

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)