FJÖLMIÐLAR VERÐA AÐ UPPLÝSA ÞEGAR STJÓRNMÁLAMENN AFVEGALEIÐA
Það var undarlegt að fylgjast með fréttum Sjónvarps í kvöld af fréttamannafundi stjórnarflokkanna og frá sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna þar sem kynnt var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um “áframhaldandi viðræður” um aðild að ESB.
Forsætisráðherrann, formaður Samfylkingarinnar, sagði á þá leið að þetta snerist alls ekki um aðild heldur bara könnun á hvað væri í pakkanum, "ekki um það hvort við ætlum inn í Evrópusambandið..."
Utanríkisráðherrann, formaður Viðreisnar, tók í sama streng og sagðist auk þess aldrei myndi skrifa undir samning um afsal á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni.
Mennta- og barnamálaráðherrann, formaður Flokks fólksins, kvaðst vera á móti aðild en þarna væri bara verið að kanna hvað stæði til boða.
Svo komu formenn Þingflokkanna með svipaðan boðskap, sögðu það undarlegt ef fólk vildi ekki vita hvað væri í boði.
Ekki að undra að fólk ruglist í ríminu. Enda sögðu margir sem teknir voru tali á förnum vegi að auðvitað þyrfti að vita hvað væri í pakkanum.

En viti menn, í sama fréttatíma er upplýst af hálfu sérfræðinga í stækkunarrétti ESB að EKKI SÉ UM NEINAR VARANLEGAR UNDANÞÁGUR að semja og er það í samræmi við það sem "stækkunarstjórar" ESB hafa margoft lýst yfir. Viðmælandi fréttastofu í Brussel var afdráttarlaus eins og margoft áður, 95% af regluverkinu væri með öllu óhagganlegt, það eina sem semja mætti um væru tímaferlin, hvenær aðlögun að einstökum þáttum ætti sér stað. Um EKKERT annað væri að ræða!
Þar með liggur fyrir að staðhæfingar ráðherra og forsvarsmanna þingflokka standast ekki, eru blekkingar. Allt þetta var hins vegar vitað fyrir. En það var líka vitað að ef tækist að tala fólk inn á að samþykkja að kíkja í pakkann væri líklegra að komast áfram með málið. Síðan kæmu allir áróðurspeningarnir eins og við kynntumst í síðustu lotu og þá kynni að vera hægt að villa fólki sýn. Um það snýst þessi slagur! Það er svo augljóst og í fréttum kvöldsins var þetta bókstaflega stafað ofan í okkur. Það voru þó ekki fréttamennirnir sem gerðu það heldur var það blákaldur veruleikinn sem þarna varð ekki umflúinn þakka skuli Brussel!
En þá kemur mín spurning til fréttamanna Sjónvarps, hvers vegna látið þið óátátalið að hlustendur ykkar séu blekktir? Hvers vegna var Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra, ekki spurð hvort hún teldi í alvöru að semja mætti VARANLEGA um yfirráð Íslendinga yfir sjávaráauðlindinni; hvers vegna var Kristrún, forsætisráðherra, ekki spurð hvort hún teldi stækkunarstjórann fara með rangt mál, því ef svo væri ekki þá væri það hún sjálf og ríkisstjórn hennar sem stunduðu blekkingar?
Og að lokum, hvers vegna var aðspurðum vegfarendum sem vildu kíkja í pokann ekki sýnd sú virðing að láta þá standa frammi fyrir þeirri staðhæfingu ráðafólksins í Brussel að ekki væri um neitt að semja annað en “tímalínuna”?
Hafa fréttamenn ekki skyldum að gegna gagnvart sannleikanum?
Fréttatími Sjónvarps 6.3.2026: https://www.ruv.is/sjonvarp/dagskra/ruv/2026-03-06/5457503
Sjá grein Kára hér á síðunni, Undanþágur og valdheimildir í stækkunarrétti Evrópusambandsins
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)