EVRÓPUSAMBANDIÐ ER EKKI EVRÓPA
Fyrr í mánuðinum sótti ég fund í Strassborg í Frakklandi. Fundurinn var á vegum Evrópuráðsins en aðild að því eiga 46 Evrópuríki, Evrópusambandsríkin 27 og síðan 19 ríki til viðbótar. Viðfangsefni Evrópuráðsins eru mannréttindi. Á vegum ráðsins starfar Mannréttindadómstóll Evrópu sem stundum er ruglað saman við dómstól Evrópusambandsins, sem fellir dóma um það hvort farið sé að regluverki ESB, þótt þarna séu engin tengsl á milli.
Evrópsk mannréttindabarátta
Ég hef verið mjög fylgjandi samstarfi um evrópsk málefni, ekki síst um mannréttindi og hvatt til þess að Evrópuráðið haldi sig við upprunalegt markmið sem því var ætlað, það er að segja að sinna mannréttindamálum í aðildarríkjunum, benda á það sem úrskeiðis kann að fara og hvetja til úrbóta. Niðurstöður Mannréttindadómstóls Evrópu eru ekki bindandi - gagnstætt því sem gerist hjá dómstól Evrópusambandsins - en takist honum vel upp skapar hann sér orð sem erfitt er að ganga gegn. Þannig á þetta líka að vera að mínu mati. Oftar en ekki hefur Mannréttindadómstólnum tekist vel upp og fyrir tilstilli Evrópuráðsins hefur mörgum mikilvægum mannréttindamálum verið hnikað í rétta átt.

Saga og fegurð
Ég framlengdi ferð mína til Strassborgar ögn að þessu sinni til þess að njóta lífsins með konu minni sem ferðamenn, sækja söfn og matsölustaði Strassborgar en fara einnig um grannbyggðirnar því allt um kring eru áhugaverðir staðir, fallegir bæir með ríka sögu að baki. Bænum Obernai treysti ég mér að mæla með; aldagömul bindingshús og aftur urmull matsölustaða, kráa og kaffihúsa. Hátt yfir bænum, á fjallstoppi, trónir klaustrið Sanctuaire du Mont Sainte-Odile en þar er að finna forkunnarfagra kirkju og býr staðurinn yfir kyrrð og fegurð.
Myndin að ofan er tekin á klausturhæðinni þar sem sér vítt yfir Elsass en myndirnar hér að neðan eru af mannvirkjum á hæðinni sjálfri. Kyrrðin leynir sér ekki. Hefði þurft meiri listamann en mig til þess að ná henni á mynd. Bindinshúsin er að finna í Obernai.


Strassborg er í Elsasshéraðinu sem er mikið vínræktarhérað og fyrir áhugasama er fróðlegt að fara í fræðsluferð á vínbúgarð sem við og gerðum í þessari heimsókn. Þar mátti fræðast um vínræktina og hve mikil rækt er einmitt lögð við hana. Þar hjálpar greinilega reynsla aldanna.

Á þessa víntunnu, sem tekur rúmlega tíu þúsund lítra af víni þegar vel er á hana fyllt, mátti sjá upplýsingar um hlutfall einstakra víntegunda Elsass vína í heild sinni.
Evrópa er þarna án Evrópusambandsins
Það er full ástæða til þess að minna á að Evrópusambandið er ekki Evrópa, Evrópusambandið er hvorki evrópsk menning né náttúrufegurð Evrópu. Hún breytir heldur engu fyrir þá sem sjá það í dýrðarljóma að sötra úr vínglasi á gangstétt í evrópskri sól. Evrópusambandið er valdakerfi sem ráðandi öfl í Evrópu eru að reyna að festa í sessi með öflugu miðstjórnarvaldi; valdakerfi sem fyrirskipar samræmt göngulag á sífellt fleiri sviðum. Þetta er óumdeilanlega staðreynd.
Alll hið jákvæða er Íslendingum opið
Brusselvaldinu hefur í vaxandi mæli verið beitt í þágu fjármagnsafla og í seinni tíð á ógnvænlegan hátt í þágu hergagnaiðnaðarins.
Íslendingar geta notið alls þess besta í Evrópu án aðildar að þessu sambandsríki í þróun; án þess að greiða með hærri sköttum í hernaðarhít ESB og lúta því valdi sem fjármagnið hefur þegar sölsað þar undir sig og áformar að gera. Um það er rætt opinksátt og eru þetta því engar getgátur.
Kapítalisminn og spillingin fylgjast að
Þeir sem trúa því að öll íslensk spilling verði úr sögunni með inngöngu í Evrópusambandið, fákeppni og einokun að sama skapi, allir í fínu aðgengilegu húsnæði, vinna verði fyrir alla, heilnæmur matur á hverju eldhúsborði … þau sem standa í þessari trú gerðu vel í því að leggja leið sína til aðildarríkja ESB, ræða við fulltrúa láglaunafólks, húsnæðis- og atvinnulausra og láta þá minna sig á að það er kapítalismanum sem spillingin og ranglætið fylgir. Þar sem fjármagnið ræður för er spilling og þar hefur Evrópusambandið verið primus mótor á síðustu þremur áratugum að leiða Mammon til öndvegis. Véfengi menn það láti þeir mig endilega vita og er ég meira en tilbúinn að hlusta – á rök og staðreyndir.

--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)