HVAÐ ESB ÞÝÐIR FYRIR ÍSLENSKA LANDBÚNAÐARFRAMLEIÐSLU
Ég hvet allt áhugafólk um íslenskan landbúnað til þess að sækja fund í Tryggvaskála á Selfossi á sunnudag - 15. mars - klukkan tólf á hádegi. Þar verður spurt og svarað um líklegar afleiðingar þess fyrir landbúnaðinn og þjóðarhag almennt ef Ísland yrði innlimað í Evrópusambandið.
Gert er ráð fyrir að fundurinn standi í hálfan annan klukkutíma - eigi lengur. Ég þykist geta fullyrt að tíminn verði vel nýttur enda frmasögumenn framúrskarandi og án efa margir í fundarsal til að taka boltann í umræðum að framsögum loknum.
Eins og fram kemur i meðfylgjandi auglýsingu verður svo annar fundur - aðskilinn - um stofnun Suðurlandsdeildar Til Vinstri við ESB. Þar er ég félagi og hvet vinstri menn til þess að fylkja saman liði undir merkjum þessara samtaka.

----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)