Fara í efni

EISTLAND BÝÐUR TIL VEISLU

Veislukosturinn er drykkjarvatn úr krana. Og til veislunnar er boðið á hótelherbergi í Tallin, höfuðborg Eistlands.

Stundum eru litlar fréttir stórar. Frétt mín frá hótelherberginu í Tallin þar sem ég dvelst þessa dagana að kynna mér stöðu mannréttindamála á vegum Evrópuráðsins – ekki Evrópusambandsins vel að merkja – getur þó varla skoðast sem nein stórfrétt en umhugsunarverð er hún engu að síður.

Hótelið sem ég dvel á er Radisson Blu og skilaboðin eru þessi til hótelgestanna: Drekkið kranavatnið, plastflöskur utan um eistneskt drykkjarvatn úr hótelkrananum eru óþarfar.

Túrismi hefur reynst Íslendingum vera lyftistöng – en aðeins í hófi eins og reyndar allt annað. Fyrir fámenna þjóð í viðkvæmu landi er hófsemin lífsnauðsyn. Það sem er umfram skynsamleg hófsemdarmörk er eyðileggjandi.

Þetta er okkur öllum auðskilið þótt þessi sannindi muni kapítalisminn aldrei skilja. Hann vill bara meira. Þess vegna má hann ekki ráða.

Mikil getur eyðileggingin orðið í landi gestgjafans ef ágengni ferðaiðnaðarins verður of mikil. En mestur verður skaðinn í sálarlífi gestgjafans.

Ágengni túrismans getur orðið óviðráðanleg. Það mætti hafa í huga þegar við bjóðum þjóðir sem telja á annan milljarð velkomnar að ramba hér um. Ekki svo að skilja að þjóðernið skipti máli - það gerir það ekki - heldur fjöldinn.

Fjöldinn er viðkvæmu landi varasamur og viðkvæmum sálum er hann enn verri því fátt er verra en gráðugur gestgjafi.

Þegar allt er gert að gróðalind er gestgjafanum hætta búin. Hann verður jafn smár og fréttin mín frá Tallin er stór.

Sala á kranavatni í plastflöskum er skýrt dæmi um gestgjafa sem ekki fær risið yfir sjálfan sig.

Hvernig væri að læra af Eistum? Jafnvel þótt milligönguna annist fjölþjóðarisi í hótelbransanum?

Íslensk hótel mættu búa gestum sínum sama veisluborð og ég sit nú við í Tallin. Það kostar ekki mikið. Bara að skrúfa frá krananum á baðinu og sleppa óþarfa plasti og rukkun fyrir allt sem því fylgir.

Eins einfalt og orðið getur en kannski nokkrum krónum minna í kassann.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)