EINLTI GERIR SÉR EKKI DAGAMUN
Fyrir hálfum öðrum áratug var þessi dagur, 8. nóvember, útnefndur sem dagur eineltis. Á eineltisdaginn er við hæfi að minna á að á einelti gerir sér ekki dagamun. Ýmsir - mættu þó vera fleiri - hafa hins vegar nýtt sér tilefnið til þess að vekja máls á afleiðingum eineltis. Í dag birtist á vefritinu Vísir.is grein eftir formann velferðarnefndar Alþingis, Kolbrúnu Áslaugu Baldursdóttur, þingkonu Flokks fólksins, þar sem hún fjallar sérstaklega um einelti gegn börnum. Ég hvet alla til þess að kynna sér þessi skrif Kolbrúnar Áslaugar en hún hefur bæði þekkingu á málefninu og hefur margsannað vilja sinn til þess að fá samfélagið til að axla ábyrgð á einelti og skaðlegum afleiðingum þess.
Umrædda grein má nálgast hér: https://www.visir.is/g/20262959884d/hinar-morgu-myndir-eineltis
Sjálfur hef ég reynt að láta þessi mál til mín taka en á þeim árum sem ég var ráðherra í ríkisstjórn 2009 til 2013 var ég rækilega vakinn til vitundar um vandann. Þar fór fremst Helga Björk Grétu- Magnúsardóttir, tónlistarkona og kennari, sem á meira en flestir aðrir í því að vitundarvakning varð um þennan vanda á þessum tíma. Vissulega hafa fleiri komið að þessum málum af alefli og nefni ég þar til dæmis Olweusar-eineltisáætlunina þar sem Þorlákur Helgason var í stafni.

Frumkvæði Helgu Bjarkar varð til þess að árum saman birtum við í sameiningu hugleiðingu í fjölmiðlum um einelti og jafnframt hvatningu um að samfélagið sameinaðist um gera allt sem í þess valdi stæði til þess að sporna gegn því. .
Hér má sjá slóðir inn á greinaskrif okkar Helgu Bjarkar Grétu- Magnúsardóttir.
Hér grein okkar Helgu Bjarkar á Vísi.is frá í fyrra: https://www.ogmundur.is/is/greinar/a-eineltisdaginn-minnum-vid-a-eineltisdaginn
Og hér er grein frá árinu áður þar sem er að finna slóðir inn á fyrri umfjöllun: https://www.ogmundur.is/is/greinar/eineltisdagur-til-thess-ad-minna-a-ad-allir-dagar-eru-eineltisdagar
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)