Fara í efni

EGGERT

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 31.10./01/11.26.
Eftirminnilegur er mér hann Eggert. Við vorum bekkjarbræður í menntaskóla. Máladeildin var okkar deild og þar brilleraði Eggert. Annan eins málamann hef ég sjaldan hitt. Hann náði valdi á erlendum tungumálum fljótar og betur en aðrir, en ekki nóg með það því að stærðfræðin lá líka vel fyrir honum og hefði hann örugglega orðið framúrskarandi stærðfræðingur hefði hann lagt hana fyrir sig.

En fyrir valinu varð læknisfræði og varð Eggert að sjálfsögðu afbragðs góður læknir.

Gárungarnir sögðu að þegar Eggert leitaði að húsnæði í Svíþjóð þar sem hann lagði stund á læknisfræðina hefði hann fyrst viljað skoða bílskúrinn því góð aðstaða þyrfti að vera fyrir viðgerðir á vélhjólum sem um skeið áttu hug hans allan.

Það sem ég vildi sagt hafa var að Eggert Jónsson var fjölhæfur hæfileikamaður sem aldrei óx neitt í augum. Ekki heldur að gerast læknir á markaði. Eggert vildi nefnilega athafna sig sem sjálfstætt starfandi læknir, öllum óháður öðrum en sjúklingum sínum.

Ég spurði Eggert að því einhvern tímann hvort hann vildi að heilbrigðiskerfið yrði allt einkavætt. Ekki man ég nákvæmlega hverju hann svaraði en mig minnir að hann hafi sagst engar slíkar hugmyndir hafa. Hann vildi einfaldlega vera sjálfstæður sjálfur. Ætlarðu þá ekki að gera neinar kröfur um þátttöku skattgreiðenda í rekstri þínum, spurði ég, svo mikið man ég. Nei að sjálfsögðu ekki. Þegar ég fer út á markaðinn þá starfa ég þar á hans forsendum. Reisi engar kröfur á aðra en sjálfan mig og sjúklinga mína.

Þessi vinur minn er löngu genginn. En minningin er þessi, einkarekstur skyldi vera einkarekstur. Ekki geng ég eins langt og Eggert gerði, er því fylgjandi að sjálfstætt starfandi læknar fái greiðslur frá mér sem skattgreiðanda. Ég áskil mér hins vegar rétt til þess að hafa skoðun á því hvernig með fé mitt er farið og dreg línurnar milli sjálfstætt starfandi lækna annars vegar og einkarekinna sjúkrahúsa hins vegar, sett á fót sem hvert annað fyrirtæki sem veitir eigendum sínum arð og opnar á mismunun í heilbrigðiskerfinu.

Þetta þykir mér eiga við um Klíníkina og nú síðast Litla spítalann sem framtakssamt dugnaðarfólk er að reisa. Vegni því vel en þá á forsendum Eggerts Jónssonar.

Kerfið er sprungið segja menn. Sé svo á að laga það innan frá. Skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt að meirihluti landsmanna vilji borga skatta í almannarekið heilbrigðiskerfi. Um einkarekna spítala tala ég fyrir sjálfan mig og segi eins og fyrri daginn:
Ekki krónu frá mér.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)