Á SPJALLI Í SAMSTÖÐINNI UM ESB OG FLEIRA
Í gær mætti ég í spjall við Rauða borðið á Samstöðinni hjá Gunnari Smára Egilssyni.
Ræddar voru nýjustu vendingar í heimsmálunum en þó einkum áform ríkisstjórnarinnar um að freista þess að innlima Ísland í Evrópusambandið. Það hefur alla tíð verið slæm hugmynd en sennilega aldrei vitlausari en nú. Fyrir þessu geri ég grein í þættinum en notaði tækifærið jafnframt til þess að minna á fund í Þjóðmenningarhúsinu á laugardag klukkan tólf á hádegi.
Enn minni ég á þann fund og eru allir velkomnir hvar sem þeir standa í stjórnmálum.
https://www.youtube.com/watch?v=4UAaS8FxaY4

Að fundinum loknum efna vinstri menn til fundar á Horninu í Hafnarstræti þar sem til stendur að stofna samtökin Til vinstri við ESB.
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometime people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Ususally this is because the reply has been dirceted to the trash bin. Be aware of this.)