Fara í efni

12. JANÚAR 1993

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 28/29.11.26.
Þetta var dagurinn sem Alþingi samþykkti EES samninginn. 33 þingmenn greiddu atkvæði með, mótatkvæði og hjásetur voru 30. Þrjátíu og fimm þúsund undirskriftir höfðu safnast um að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um samninginn. Þetta var fimmtungur kjósenda í landinu, nöfnum safnað án tölvutækni, bara skrifað undir á bensínstöðvum og á fundum hjá verkalýðsfélögum og bændasamtökum sem öll vildu þjóðaratkvæðagreiðslu. Töldu málið það stórt. Um væri að ræða valdaafsal og brot á stjórnarskrá Íslands.
Meirihluti Alþingis leiddi þetta ákall hjá sér, málið væri of flókið fyrir fákunnandi þjóð. Nú þyrfti að hafa vit fyrir henni og það vit væri að finna á Alþingi – hjá meirihlutanum á þingi.

Hið Evrópska efnahagssvæði var orðið að veruleika. Við sem vorum gagnrýnin á samninginn drógum okkur í hlé. Nú var of seint að fara svissnesku leiðina og gera tvíhliða samning.

Vissulega töldu margir að EES samningurinn myndi þjóna Íslandi vel með frjálsu flæði fólks, fjármagns, varnings og þjónustu á sameiginlegum markaði; fögnuðu því jafnvel að allt og allir skyldu þvingaðir inn í markaðshyggju, trúarbrögð tíðarandans.

Smám saman fór þó að koma í ljós að óttinn um fullveldisafsal reyndist ekki ástæðulaus því að sameiginlegur markaður gerðist sífellt afskiptasamari og krafðist aðlögunar, iðulega þvert á almannahag. Fjölmörg dæmi mætti nefna, svo sem þegar haft var í hótunum við íslensk stjórnvöld sem vildu stemma stigu við markaðsvæðingu innviða og erlendu eignarhaldi á landi og auðlindum. Nú síðast horfa menn agndofa til þess að óheimilt þyki að Landsvirkjun mismuni í þágu heimilanna á kostnað álrisanna. Ekki megi mismuna á markaði!

EES samningurinn seilist þannig æ lengra inn í skipulag samfélagsins og þá skipta máli ýmsar afleiddar afleiðingar hans. Við það verða til grá svæði þar sem óljóst er hvar markalínur liggi á milli Evrópuréttar og íslensks réttar. Hvar á ákvörðunarvaldið um þessi landamæri að vera?

Samningamenn Íslands gerðu sér grein fyrir vanda sínum gagnvart stjórnarskránni. Niðurstaða þeirra varð sú að í stað þess að binda það í sjálfan lagatextann að allt laga- og úrskurðarvald lægi í Brussel, skyldi styðjast við lögskýringarbókun og fyrir bragðið væri komist fram hjá stjórnarskránni. Þetta var bókun 35.

Svigrúmið sem hún skapar er vel að merkja að mínum dómi alltof takmarkað. En þó svo mikið að Evrópusambandið hefur nú fyrirskipað að það skuli úr sögunni. Bókunin skuli færð inn í lagatextann.

Og ríkisstjórnin hlýðir.
En þar með er friðurinn úti.

Fari fram sem horfir verður að kalla eftir því sem þjóðinni var neitað um árið 1993, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.

Við þáverandi aðstæður var þörf.
Við núverandi aðstæður nauðsyn.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)