Fara í efni

Velkominn hágé

Hver man ekki eftir undirskriftinni hágé á Þjóðviljanum forðum? Þetta var að sjálfsögðu undirskrift Helga Guðmundssonar, rithöfundar, stjórnmálamanns og verkalýðsforkólfs til langs tíma, en Helgi stóð um árabil í framvarðarsveit verkalýðsbaráttunnar – og lætur reyndar enn til sín taka á því sviði. Í gær birtist pistill eftir Helga Guðmundsson hér á síðunni í dálkinum frjálsir pennar. Helgi mun skrifa pistla hér annað veifið og er ég viss um að margir munu hafa áhuga á að fylgjast með þeim skrifum. Þetta þykir mér vera mikið ánægjuefni og þykir mér heiður af því að birta hér skrif hans.