Fara í efni

VEL TIL FUNDIÐ

Það er góð hugmynd hjá samtökunumTil vinstri við ESB að boða til hádegisspjalls um nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Sú barátta er að baki en greinilegt er að ríkisstjórnin er ekki af baki dottin, neitar að draga til baka umsókn sem hún segir liggja á  skrifborði framkvæmdastjórnar ESB - bíði þess þá væntanlega að verða endurvakin. Það er vinnulag sem ESB stjórnendur skilja og kunna vel að meta!
Ofan á þetta bætist svo ákafi ríkisstjórrnarinnar að lögleiða bókun 35 sem yrði til þess að skerða enn fullveldi Íslands - nóg var gert með EES samningnum. Málinu er með öðrum orðum ekki lokið ...